29 Fjölskyldumál
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, forsætisráðherra og dómsmálaráðherra. Það skiptist í sjö málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 29 Fjölskyldumál árið 2026 eru áætluð 82.574,7 m.kr. og aukast um 5.867,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 7,8%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 6.863,7 m.kr. milli ára eða sem svarar til 9,1%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
29.10 Barnabætur
Málaflokkurinn tekur til barnabóta sem eru tekjutengdar bætur og greiddar eru með börnum yngri en 18 ára. Fjárhæð barnabóta ræðst af fjölda og aldri barna á heimili, hjúskaparstöðu foreldra og tekjum þeirra. Barnabætur eru tekjutengdar til að ná því fram að stuðningur barnabóta sé mestur hjá þeim fjölskyldum sem þurfa mest á stuðningi að halda en meginmarkmið barnabóta er að styðja við efnaminni foreldra. Barnabætur byggjast á A-lið 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og annast Skatturinn umsýslu barnabóta. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 21.000 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum.
29.20 Fæðingarorlof
Starfsemi málaflokksins er í höndum Fæðingarorlofssjóðs sem er í vörslu Vinnumálastofnunar. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Jafnari nýting foreldra á rétti til fæðingarorlofs |
||
|
Hækkun mánaðarlegra hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði til foreldra í fæðingarorlofi úr 800.000 kr. í 900.000 kr. |
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið |
2.150 m.kr. |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 28.783,5 m.kr. og hækkar um 2.301 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 37,1 m.kr.
Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 2.150 m.kr. sem byggist m.a. á aðgerðum stjórnvalda til stuðnings kjarasamningum um að hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hækki í áföngum til ársins 2026 úr 600.000 kr. í 900.000 kr.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 150 m.kr. til þess að bæta hag fjölburaforeldra og þeirra sem veikjast í kjölfar meðgöngu.
29.30 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð
Málaflokkurinn tekur til greiðslna samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð. Um er að ræða heimildargreiðslur sem eru háðar mati hverju sinni. Málaflokkurinn tekur einnig til mæðra- og feðralauna og endurgreiðslu umtalsverðs kostnaðar við læknishjálp og lyf. Tryggingastofnun annast framkvæmd málaflokksins.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 664,8 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 26,8 m.kr.
Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn
Starfsemi málaflokksins er í höndum umboðsmanns skuldara, Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, Sjónstöðvarinnar, Barna- og fjölskyldustofu, umboðsmanns barna og Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Auk þess falla lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, meðlög, sorgarleyfi, umönnunargreiðslur og greiðslur til stuðnings fjölskyldum langveikra eða alvarlega fatlaðra barna undir málaflokkinn. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
Unnið er að úrbótum í málefnum fullorðinna einstaklinga sem sæta öryggisráðstöfunum. Þjónusta við þessa hópa hefur hingað til verið ómarkviss og brotakennd og skortur verið á sérhæfðum búsetuúrræðum. Með markvissri uppbyggingu úrræða, samhliða nauðsynlegum lagabreytingum, má tryggja betri og öruggari þjónustu og betri nýtingu fjármuna. Lagt verði til við Alþingi að samþykkja heildstæðan lagaramma um öryggisráðstafanir skv. dómsúrlausn og komið á fót stofnun um framkvæmd fullnustu öryggisráðstafana skv. dómsúrlausn.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
|
Markmið 1: Bætt lífsgæði eldra fólks |
|||
|
Samþætting heimaþjónustu. |
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
|
Upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta og sérhæfður stuðningur fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þess. |
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
|
Efling upplýsinga, rannsókna, nýsköpunar og þróunar í þjónustu við eldra fólk. |
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
|
Ein upplýsingagátt fyrir allt landið varðandi upplýsingar um þjónustu og réttindi eldra fólks. |
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
|
Markmið 2: Hlutfall samþættra mála barna á öðru og þriðja stigi þjónustu minnki |
|||
|
Innleiða lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
|
Innleiða aðgerðir stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti og Barna- og fjölskyldustofa |
Innan ramma |
|
|
Markmið 3: Stytting biðtíma eftir þjónustu fyrir börn |
|||
|
Átak í að stytta biðlista í þjónustu við börn. |
Ráðgjafar- og greiningarstöð |
Innan ramma |
|
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 23.657,2 m.kr. og hækkar um 4.075,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 609,1 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 3.000 m.kr. vegna samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga. Í samkomulaginu tekur ríkið yfir ábyrgð og kostnað á búsetu barna með fjölþættan vanda utan heimilis.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 500 m.kr. vegna byggingar á nýju húsnæði fyrir öryggisvistun. Áætlaður kostnaður við byggingu viðeigandi húsnæðis á tímabili gildandi fjármálaáætlunar er 2,6 ma.kr. og er áætlað að framkvæmdum verði lokið árið 2028.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 500 m.kr. vegna umönnunargreiðslna í tengslum við endurmat bótaliða almannatrygginga.
- Gert er ráð fyrir að fresta niðurfellingu 520 m.kr. fjárveitingar um eitt ár vegna stuðnings við börn á flótta, fækkunar á biðlista og barna í viðkvæmri stöðu.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 340 m.kr. vegna sorgarleyfis. Alþingi samþykkti þann 6. júní 2025 frumvarp um breytingar á lögum um sorgarleyfi. Með nýju lögunum nær sorgarleyfi einnig til foreldra sem missa maka og eiga börn yngri en 18 ára. Jafnframt fela lögin í sér að foreldri á nú sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að þrjá mánuði frá þeim degi sem fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu á sér stað í stað tveggja mánaða. Einnig að foreldri sem hefur verið í samfelldu starfi á nú sjálfstæðan rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði frá þeim degi sem andvanafæðing á sér stað eftir 22 vikna meðgöngu í stað þriggja mánaða áður.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 230 m.kr. vegna tímabundinna fjárveitinga til þriggja ára sem komu inn í fjárlögum 2023 en falla nú niður. Um er að ræða ýmsar stuðningsaðgerðir við viðkvæma hópa sem gripið var til í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 137,2 m.kr.
29.50 Bætur til eftirlifenda
Málaflokkurinn tekur til barnalífeyris vegna andláts foreldris samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá tekur málaflokkurinn til maka- og umönnunarbóta, dánarbóta og barnalífeyris vegna menntunar skv. lögum um félagslega aðstoð en þar er um að ræða heimildargreiðslur sem eru háðar mati hverju sinni. Tryggingastofnun annast framkvæmd málaflokksins.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 615,3 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 24,8 m.kr. Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 0,1 m.kr.
29.60 Bætur vegna veikinda og slysa
Starfsemi málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands og tekur til bóta samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015, og lögum um sjúklingatryggingu, nr. 47/2024, sbr. einnig lög nr. 112/2008, um sjúkratryggingar.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Endurskoða bætur í ljósi breytinga á greiðsluþátttökukerfi sjúkratrygginga frá því bæturnar voru lögfestar og einfalda umsýslu |
||
|
Færa sjúkrahjálp skv. lögum um almannatryggingar í almenna greiðsluþátttökukerfið. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma. |
|
Endurskoða fyrirkomulag og ábyrgð á sjúkra- og slysadagpeningum. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 3.122,3 m.kr. og eru engar breytingar á fjárheimild frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 122 m.kr.
Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins. Engar breytingar eru á fjárheimildum málaflokksins.
29.70 Málefni innflytjenda og flóttamanna
Starfsemi málaflokksins er í höndum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Einnig falla undir málaflokkinn endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og eru þær greiðslur á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna 15. gr. Barnaverndarlaga, nr. 80/2002, falla undir málaflokkinn en greiðslurnar eru á ábyrgð mennta- og barnamálaráðuneytis. Enn fremur sinnir Vinnumálastofnun nú verkefnum vegna flóttafólks eftir að starfsemi Fjölmenningarseturs var sameinuð starfsemi Vinnumálastofnunar árið 2023.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Hlutfall flóttafólks sem nýtir íslenskunámskeið á fyrsta ári eftir verndarveitingu aukist* |
||
|
Bjóða fullorðnu flóttafólki og atvinnuleitendum sem ekki eiga íslensku að móðurmáli þátttöku á íslenskunámskeiðum. Jafnframt sé í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar og tungumálaskóla tryggt að nægt framboð og aðgengi sé að íslenskunámi. |
Vinnumálastofnun |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Hlutfall flóttafólks sem fær samfélagsfræðslu fyrir flóttafólk aukist* |
||
|
Ráðast í heildarendurskoðun og uppfærslu á kennsluefni í samfélagsfræðslu fyrir fullorðna innflytjendur með áherslu á hagnýtar upplýsingar og fjölbreyttar leiðir til náms. Að auki verði aðgengi flóttafólks að samfélagsfræðslu sérstaklega eflt. |
Vinnumálastofnun |
Innan ramma |
* Orðalagi markmiða lítið breytt frá því sem var í mælaborði árangurs í júní 2025.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 4.731,6 m.kr. og lækkar um 508,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 176,4 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 330 m.kr. vegna millifærslu af innflytjendaráði og móttöku flóttamanna til Vinnumálastofnunar á málaflokki 30.10. Millifærslan á að koma til móts við samsvarandi fjárheimild sem er að falla niður hjá Vinnumálastofnun sem stofnunin fékk tímabundið til tveggja ára í fjárlögum 2024 til að standa straum af vinnu ráðgjafa hjá stofnuninni sem aðstoða flóttamenn við atvinnuleit og virkni.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 150 m.kr. Um er að ræða tímabundna fjárheimild vegna aðgerðaáætlunar um inngildingu innflytjenda og flóttamanna sem fellur nú niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 28,8 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2026