30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi árið 2026 eru áætluð 46.210,5 m.kr. og aukast um 642,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 1,5%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.347,5 m.kr. milli ára eða sem svarar til 5,4%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Vinnumarkaður og atvinnuleysi

30.10 Vinnumál og atvinnuleysi

Starfsemi málaflokksins er í höndum Vinnumálastofnunar, Atvinnuleysistryggingasjóðs og Ábyrgðasjóðs launa. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Draga úr fjarveru á vinnumarkaði

Greining á þjónustuþörf einstaklinga án atvinnu þannig að unnt sé að veita einstaklingsmiðaða og markvissa aðstoð með það að markmiði að draga úr langtímaatvinnuleysi.

Vinnumálastofnun

Innan ramma

Reglulegar mælingar og greiningar á árangri vinnumarkaðsaðgerða.

Vinnumálastofnun

Innan ramma

Aukið eftirlit með greiðslu atvinnuleysistrygginga.

Vinnumálastofnun

Innan ramma

Markmið 2: Efla stuðningsúrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu í tengslum við þátttöku þess á vinnumarkaði

Einstaklingsmiðuð þjónusta við einstaklinga með skerta starfsgetu, s.s. „atvinna með stuðning“ (AMS) og sérstök þjónusta við ungt fólk (IPS) sem stendur frammi fyrir geðrænum eða félagslegum áskorunum..

Vinnumálastofnun

Innan ramma.

Innleiðing lagabreytinga vegna nýs örorkulífeyriskerfis og greiðslna virknistyrks frá og með 1. september 2025 og þjónustu við hlutaörorkulífeyrisþega í atvinnuleit og virkni.

Vinnumálastofnun

Innan ramma

Stuðningur við atvinnurekendur til að ráða einstaklinga með skerta starfsgetu og fjölga hlutastörfum.

Vinnumálastofnun

250 m.kr.

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 44.276,7 m.kr. og hækkar um 663,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.624,7 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:30.20 Vinnumarkaður

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.131,2 m.kr. vegna atvinnuleysisbóta í samræmi við uppfærða þjóðhagsspá með tilliti til breytinga á atvinnuleysi og mannfjölda á vinnufærum aldri.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 712,9 m.kr. vegna starfsendurhæfingasjóða.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 330 m.kr. Um er að ræða millifærslu af innflytjendaráði og móttöku flóttamanna á málaflokki 29.7 til Vinnumálastofnunar. Millifærslan á að koma til móts við samsvarandi fjárheimild sem er að falla niður hjá Vinnumálastofnun sem stofnunin fékk tímabundið til tveggja ára í fjárlögum 2024 til að standa straum af vinnu ráðgjafa hjá stofnuninni sem aðstoða flóttamenn við atvinnuleit og virkni.
  4. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 150 m.kr. vegna aukins framlags til vinnusamninga öryrkja.
  5. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. vegna vinnumarkaðsúrræða fyrir fólk með skerta starfsgetu í tengslum við heildarendurskoðun örorkulífeyriskerfisins.
  6. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 330 m.kr. vegna tímabundinnar fjárheimildar varðandi fjölgun stöðugilda hjá Vinnumálastofnun vegna aðstoðar við atvinnuleit og virkni fyrir flóttafólk sem kom inn í fjárlögum 2024 en fellur nú niður.
  7. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 300 m.kr. vegna lækkunar á sértekjum sem lækka um sömu upphæð.
  8. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 250 m.kr. vegna tímabundinnar fjárheimildar sem fellur niður í tengslum við rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík.
  9. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 120 m.kr. þegar tímabundin fjárheimild frá 2024 fellur niður, fjárheimildin var veitt í íslenskunámskeið til að mæta fjölgun flóttafólks á þeim tíma.
  10. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 765,6 m.kr. Þar af er gert ráð fyrir að draga úr útgjöldum til atvinnuleysistrygginga annars vegar um 500 m.kr. með áherslu á virkni fólks og aukið eftirlit og hins vegar um 200 m.kr. með því að þrengja lágmarksskilyrði til greiðslu atvinnuleysisbóta.
  11. Starfsemi málaflokksins er í höndum embættis ríkissáttasemjara og Vinnueftirlits ríkisins. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Öruggari og heilsusamlegir vinnustaðir

 

Mat og greining á gagnaumhverfi Vinnueftirlitsins með það að markmiði að upplýsingatækni styðji betur við kjarnastarfsemi stofnunarinnar.

Vinnueftirlit ríkisins

Innan ramma

Skipulögð og markviss miðlun upplýsinga, fræðslu og reynslu til vinnustaða landsins um mikilvægi öryggi og velferð starfsfólks.

Vinnueftirlit ríkisins

Innan ramma

Markmið 2: Efla fyrirbyggjandi sáttamiðlun ríkissáttasemjara við gerð kjarasamninga á vinnumarkaði

 

Áframhaldandi mótun á vettvangi undir stjórn ríkissáttasemjara vegna stærri deilumála milli samningsaðila á gildistíma kjarasamninga.

Ríkissáttasemjari

Innan ramma

Verkstjórn verkefna sem samningsaðilar vinna á samningstíma og ráðgjöf veitt eftir þörfum.

Ríkissáttasemjari

Innan ramma

Vinnuaðferðir sáttamiðlunar kynntar fyrir samningsaðilum og nýttar við úrlausn mála.

Ríkissáttasemjari

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 1.933,8 m.kr. og lækkar um 20,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 80,3 m.kr.

Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helsta breyting á fjárheimildum málaflokksins er eftirtalin:

  1. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 34,5 m.kr.