31 Húsnæðis- og skipulagsmál

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Húsnæðis- og skipulagsmál

Heildargjöld málefnasviðs 31 Húsnæðis- og skipulagsmál árið 2026 eru áætluð 25.901,9 m.kr. og lækka um 2.132,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 7,7%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 1.949,2 m.kr. milli ára eða sem svarar til 7,0%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

31.10 Húsnæðismál

Undir starfsemi málaflokksins falla húsnæðisbætur, stofnframlög, hlutdeildarlán, vaxta­bætur og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025.

Helstu verkefni 2026 Framkvæmdaraðili Breyting á fjárveitingu
Markmið 1: Markmið um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum

Breytt fyrirkomulag stofnframlaga til almennra íbúða.*

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og HMS

Innan ramma

Breytt fyrirkomulag hlutdeildarlána til fyrstu íbúðarkaupa.*

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og HMS

Innan ramma

Hertar reglur um skammtímaleigu og aðrar aðgerðir til að fleiri íbúðir nýtist sem heimili fólks.*

Atvinnuvegaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Jafnvægi á húsnæðismarkaði

Samningar við sveitarfélög um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga til að tryggja nægt og tímanlegt lóðaframboð.**

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og HMS

Innan ramma

Fjölgun íbúða með minna vistspori með því að liðkað verði fyrir umbreytingu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði og notkun færanlegra einingahúsa.**

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og HMS

Innan ramma

Lóðir og húsnæði í eigu ríkisins verði nýtt til að hraða uppbyggingu íbúða.**

Fjármála- og efnahagsráðuneyti og félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Markmið um skilvirkari stjórnsýslu og gæði íbúða í jafnvægi við umhverfið

Sameining Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skipulagsstofnunar.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HMS og Skipulagsstofnun

Innan ramma

Aukin réttarvernd neytenda vegna byggingargalla með breyttu fyrirkomulagi byggingareftirlits.**

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, HMS

Innan ramma

Einfaldara regluverk með endurskoðun byggingarreglugerðar.*

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og HMS

Innan ramma

*Verkefnið styður jafnframt við markmið 2
** Verkefnið styður jafnframt við markmið 1

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 25.070,4 m.kr. og lækkar um 2.128,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 162,2 m.kr.

Ekki er um að ræða teljandi breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Gert er ráð fyrir að framlag vegna vaxtabóta lækki um 1,3 ma.kr. og falli brott frá og með 1. janúar 2027.
  2. Stofnframlög vegna almennra leiguíbúða eru aukin um 3,9 ma.kr. en á móti fellur niður tímabundið framlag sem nemur 3,7 ma.kr og samtals nema stofnframlögin 7,5 ma.kr. árið 2026.
  3. Húsnæðisbætur lækka um 500 m.kr. í tengslum við útgjaldaáætlun.
  4. Sértækur húsnæðisstuðningur og vaxtaniðurgreiðslur vegna heilbrigðis- og náttúruvár falla niður en fjárhæð þessa nam 467 m.kr. í fjárlögum ársins 2025.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 74,6 m.kr.

31.20 Skipulagsmál

Undir starfsemi málaflokksins fellur Skipulagsstofnun og Skipulagssjóður. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Vernd umhverfis og náttúru

Unnið verði að leiðbeiningum um landslagsgreiningu svo að skipulagsákvarðanir um ráðstöfun lands taki mið af þeim gæðum sem felast í landslagi.

Skipulagsstofnun

Innan ramma

Forgangsröðun verkefna vegna skipulags strandsvæða.

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Skipulagsstofnun

Innan ramma

Markmið 2: Velsæld samfélags

Unnið verði að mælaborði um stöðu og þróun skipulagsmála.

Skipulagsstofnun

Innan ramma

Bæta aðgengi að upplýsingum um möguleika á uppbyggingu húsnæðis í skipulagsáætlunum til að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir húsnæði.

Skipulagsstofnun

Innan ramma

Unnið verði að því að einfalda ferla í skipulagsgerð og byggingarmálum þannig að til verði einn heildstæður, samþættur og skilvirkur ferill með stafræna þróun að leiðarljósi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Samkeppnishæft atvinnulíf

Unnið verði að endurskoðun skipulagslaga..

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Innan ramma

Styrkt verði leiðbeinandi hlutverk Skipulagsstofnunar við sveitarfélög við skipulagsgerð og afgreiðslu skipulagstillagna.

Skipulagsstofnun

Innan ramma

Gerð verði strandsvæðisskipulög í Eyjafirði og Skjálfanda.

Skipulagsstofnun

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 831,5 m.kr. og lækkar um 4,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 21,4 m.kr.

Ekki er um að ræða teljandi breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 5,8 m.kr.