32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra, dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála árið 2026 eru áætluð 12.973,8 m.kr. og lækka um 20,1 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025, eða sem svarar til 0,2%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 452,8 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 3,6%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum, endurskoðunar jafnlaunavottunar, niðurfellingar á varasjóðum málaflokka, 3% aðhalds á aðalskrifstofu ráðuneytisins ásamt því að prentun þingskjala verður hætt. Almennt aðhald málefnasviðsins er útfært með hlutfallslegri skiptingu á stofnanir og verkefni.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit
Helstu verkefni málaflokksins eru á sviði lýðheilsu í heilbrigðisþjónustu þar sem megináhersla er á heilsueflingu og forvarnir, auk þess sem verkefni málaflokksins eru geislavarnir, sóttvarnir, viðbúnaður við heilsuvá, eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki og að tryggja greitt aðgengi að lyfjum og lækningatækjum. Heilbrigðisráðuneytið fer með stjórn málaflokksins og undir málaflokkinn falla embætti landlæknis, Lyfjastofnun, Geislavarnir ríkisins, Lýðheilsusjóður og verkefni er varða viðbúnað vegna farsótta.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Efling heilsu og heilbrigðra lifnaðarhátta |
||
|
Aðgerðaáætlun í málefnum offitu í kjölfar þingsályktunartillögu sem lögð verður fram á haustþingi 2025. |
Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis |
Innan ramma |
|
Lagabreytingar á haustþingi 2025 sem miða að forvörnum gegn nikótínnotkun barna og ungmenna. |
Heilbrigðisráðuneyti, ÁTVR og heilbrigðisnefndir |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Aukið öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna |
||
|
Setja reglugerð um innra eftirlit heilbrigðisstofnana. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Innleiða gæðaskrár um afmarkaða hópa sjúklinga sem nýttar eru til að auka gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu. |
Embætti landlæknis og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Aukin gæði og efling rafrænnar heilbrigðisþjónustu |
||
|
Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2025 þess efnis að öllum veitendum heilbrigðisþjónustu verði gert skylt að nýta stafræn sjúkrahúskerfi.. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma. |
|
Stafvæðing pappírsbundinna lausna í heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti, embætti landlæknis og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 3.465,6 m.kr. og lækkar um 104 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 126,8 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild embætti landlæknis er aukin um 71 m.kr. vegna kvörtunarmála og rannsókna alvarlegra atvika.
- Fjárheimild Lyfjastofnunar er aukin um 60 m.kr. vegna verkefna sem snúa að verð- og greiðsluþátttöku lyfja og verðendurmati lyfja.
- Fjárheimild Geislavarna ríkisins er aukin um 20 m.kr. vegna eftirlits með kjarnorkuknúnum kafbátum.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 9,3 m.kr. vegna breytts greiðslufyrirkomulags vegna Microsoft-samninga.
- Niðurfellt er 20 m.kr. tímabundið framlag til Lýðheilsusjóðs.
- Útgjöld málaflokksins lækka um 200 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjuáætlunum stjórnsýslustofnana.
- Aðhald í starfsemi málaflokksins er 38 m.kr.
- Sértækar aðhaldsráðstafanir málaflokksins eru 21,5 m.kr. Þar af er gerð sértæk aðhaldskrafa sem felur í sér að varasjóður málaflokksins, að upphæð 15,2 m.kr., er felldur tímabundið niður annað árið í röð.
32.20 Jafnréttismál
Undir málaflokkinn falla aðgerðir hins opinbera á sviði kynjajafnréttis og jafnréttis í víðtækri merkingu, auk þess sem mannréttindamál falla einnig undir málaflokkinn. Kynjajafnrétti er forgangsmál þar sem jafnréttismál verða ávallt í forgrunni ákvarðanatöku. Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, lög um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020, lög nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, og lög nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði (mismununarlöggjöfin), teljast til helstu laga málaflokksins, auk laga um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019, en málefni hinsegin fólks falla hér undir. Starfsemi Jafnréttisstofu tilheyrir málaflokknum.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Launajafnrétti verði náð - kynbundnum launamun verði útrýmt |
||
|
Breyta lögum um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana til einföldunar í ljósi fenginnar reynslu, sbr. 11. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Þróa virðismatskerfi starfa í þágu kynjajafnréttis. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Sporna við kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi |
||
|
Ný aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundu ofbeldi og áreitni fyrir árin 2026–2029. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Landsáætlun um kynbundið ofbeldi gegn konum. |
Dómsmálaráðuneytið |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Réttindi hinsegin fólks tryggð |
||
|
Framfylgd verkefna í nýrri aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 398,2 m.kr. og lækkar um 9,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 13 m.kr.
Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 0,5 m.kr. vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 3 m.kr. og er útfært með hlutfallslegri skiptingu niður á stofnanir og verkefni málaflokks.
32.30 Stjórnsýsla heilbrigðismála
Undir málaflokkinn heyra m.a. aðalskrifstofa heilbrigðisráðuneytisins, Sjúkratryggingar Íslands og Vísindasiðanefnd. Sjúkratryggingar Íslands sjá um framkvæmd annarra málaflokka er falla undir málefnasvið um sjúkrahúsþjónustu (23), heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa (24), hjúkrunar- og endurhæfingarrými (25) og lyf og lækningatæki (26). Undir málaflokkinn heyra einnig stafræn málefni. Verkefni heilbrigðisráðuneytisins eru nánar tilgreind í forsetaúrskurði 5/2025.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Skilvirk stjórnsýsla heilbrigðismála |
||
|
Fækkun nefnda, ráða og stjórna á málefnasviðum heilbrigðisráðuneytisins. |
Heilbrigðisráðuneytið |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Efling vísindarannsókna í heilbrigðisþjónustu |
||
|
Stutt verði við innleiðingu einstaklingsbundinnar heilbrigðisþjónustu í samræmi við tillögur starfshóps þar að lútandi. |
Heilbrigðisráðuneytið |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 4.720,5 m.kr. og hækkar um 70,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 159,3 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 200 m.kr. til að fjármagna ýmis áherslumál ríkisstjórnarinnar. Þar af eru Sjúkratryggingar Íslands og Lyfjastofnun styrkt ásamt embætti landlæknis.
- Millifærðar eru 26 m.kr. á málaflokk 32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit vegna aukinna fjárveitinga til embættis landlæknis vegna kvörtunarmála og rannsókna alvarlegra atvika.
- Millifærðar eru 60 m.kr. á málaflokk 32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit vegna aukinna fjárveitinga til Lyfjastofnunar vegna verkefna sem snúa að verð- og greiðsluþátttöku lyfja og verðendurmati lyfja.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 75 m.kr. vegna átaks í bólusetningum.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 10 m.kr. vegna samnings Íslands í alþjóðasamstarfi WHO.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 10,3 m.kr. vegna breytts greiðslufyrirkomulags vegna Microsoft-samninga.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 5,3 m.kr. vegna breytinga Stjórnarráðsins í samræmi við forsetaúrskurð 5/2025.
- Niðurfellt er 35 m.kr. tímabundið framlag til Píeta-samtakanna.
- Niðurfellt er 10 m.kr. tímabundið framlag til Alzheimersamtakanna vegna reksturs Seiglunnar.
- Aðhald í starfsemi málaflokksins er 29,8 m.kr.
- Sértækar aðhaldsráðstafanir málaflokksins eru 61,8 m.kr. Þar af er gerð sértæk aðhaldskrafa sem felur í sér að varasjóður málaflokksins, að upphæð 2,8 m.kr., er felldur tímabundið niður annað árið í röð.
32.40 Stjórnsýsla félagsmála
Starfsemi málaflokksins er í höndum aðalskrifstofu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, auk þess sem rekstur úrskurðarnefndar velferðarmála, Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála og Tryggingastofnunar fellur undir málaflokkinn.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 4.389,5 m.kr. og hækkar um 23,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 173,8 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Gert er ráð fyrir að fjárheimild málaflokksins hækki um 35,7 m.kr. vegna breytinga stjórnarráðsins í samræmi við forsetaúrskurð 5/2025.
- Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 18 m.kr. vegna hagsmunafulltrúa eldra fólks sem verður falið að standa vörð um réttindi þess.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 80,7 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2026