34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir árið 2026 eru áætluð 30.562,3 m.kr. og aukast um 3.283,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 13,7%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 6.529,6 m.kr. milli ára eða sem svarar til 27%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
34.10 Almennur varasjóður
Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Samkvæmt 24. gr. laga um opinber fjármál er almennum varasjóði ætlað að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg. Almennum varasjóði er einkum ætlað að mæta frávikum í launa-, gengis- og verðlagsforsendum fjárlaga og meiri háttar ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum, s.s. vegna náttúruhamfara, eða útgjöldum sem ókleift er að mæta með öðrum hætti samkvæmt fjárlögum. Nánar er fjallað um framangreind skilyrði og verkferlið við almennan varasjóð í kafla 5.7 Varasjóðir og millifærslur fjárheimilda innan fjárlagaárs.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 22.888,7 m.kr. og hækkar um 2.605,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 3.241,7 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Af almennum launa- og verðlagsbreytingum á málaflokknum er 3.000 m.kr. varúðarfærsla til þess að mæta frávikum í endanlegum útreikningi launa- og verðlagsbóta sem fram fer þegar kjarasamningar eru frágengnir við öll opinber stéttarfélög. Þá getur slík varúðarfærsla mætt viðbótarútgjöldum vegna mögulegra leiðréttinga á útreikningi launa- og verðlagsbóta innan ársins 2026. Heildarumfang áætlaðra launa- og verðlagsbreytinga í fjárlagafrumvarpi ársins 2026 nemur 43,5 ma.kr. eins og fram kemur í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið um 2.000 m.kr. vegna reksturs öryggisvistunarrýma og öryggisúrræða vegna ósakhæfra einstaklinga. Þrjú ráðuneyti koma að slíkum rekstri, þ.e. dómsmálaráðuneytið, félags- og húsnæðismálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið. Þar sem ekki lá fyrir skipting kostnaðar milli aðila þegar forsendum frumvarpsins var lokað er fjárheimild vegna verkefnisins tímabundið geymd á almennum varasjóði. Þessi fjárheimild verður færð af almennum varasjóði til viðeigandi málaflokka þegar útfærsla liggur fyrir.
- Fjárheimild málaflokksins er lækkuð tímabundið um tæplega 1.500 m.kr. vegna sértækra hagræðingarverkefna sem eftir er að útfæra nánar á málaflokka. Um er að ræða ýmis verkefni, s.s. fækkun fermetra vegna starfsmanna ríkisins, sameiningu nefnda og aukinn samrekstur stofnana, auk hluta af áætlaðri hagræðingu vegna opinberra innkaupa sem eftir er að færa á málefnasvið.
- Fyrir utan niðurfelldar heimildir sem eiga uppruna sinn í útfærslu á fjárlögum ársins 2025 og tilfærslu heimilda sem vistaðar voru tímabundið á almennum varasjóði í fjárlögum þess árs eru aðrar breytingar á umfangi almenna varasjóðsins ætlaðar til þess að tryggja getu varasjóðsins til þess að standa undir lögbundnu verkefni sínu, sbr. 24. gr. laga um opinber fjármál, og viðhalda varasjóðunum umfram hið lögbundna lágmark sem nemur 1% af heildarfjárheimildum komandi fjárlagaárs.
34.20 Sértækar fjárráðstafanir
Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra en nánar er fjallað um hann í fjármálaáætlun. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 485,5 m.kr. og hækkar um 4,4 m.kr. sem nemur launa- og verðlagsbótum.
34.30 Afskriftir skattkrafna
Starfsemi málaflokksins er í höndum fjármála- og efnahagsráðherra. Eðli málaflokksins er með þeim hætti að ekki verður fjallað um markmið og aðgerðir varðandi starfsemi hans. Um er að ræða fjárheimild á móti gjaldfærslu á bæði beinum afskriftum skattkrafna sem taldar eru sannanlega tapaðar, t.d. vegna gjaldþrota, og óbeinum afskriftum þar sem kröfur eru færðar niður um tiltekinn hluta sem reynsla bendir til að muni að líkindum ekki innheimtast. Um er að ræða kröfur vegna álagðra skatta, álagðra vaxta á ógreidda skatta og annarra tekna. Afskriftir skattkrafna eru færðar til gjalda samkvæmt IPSAS-staðli en til tekjulækkunar samkvæmt GFS-staðli. Þær hafa bein áhrif á afkomu ársins en hvorki á sjóðstreymi né skuldir ríkissjóðs.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 7.188,1 m.kr. og hækkar um 678,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum í samræmi við áætlanir.
Fjárlög fyrir árið 2026