35 Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð utanríkisráðherra. Undir málefnasviðið heyrir einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 35 Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands árið 2026 eru áætluð 16.372,5 m.kr. og aukast um 1.362,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 9,1%. Þar sem útgjöld málefnasviðsins eru miðuð við tiltekið hlutfall af vergum þjóðartekjum eru ekki gerðar almennar launa- eða verðlagsbreytingar á fjárheimild málefnasviðsins á milli ára.
Myndin endurspeglar þá útfærslu sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
35.10 Þróunarsamvinna
Starfsemi málaflokksins er í höndum þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytis, sendiskrifstofa Íslands í Lilongwe, Kampala og Freetown sem og fastanefnda Íslands í New York, Genf, París og Róm. Íslensk stjórnvöld leggja sig fram um að vera áreiðanlegur samstarfsaðili í þróunarsamvinnu, fara vel með þróunarfé og vinna samkvæmt bestu starfsvenjum. Utanríkisráðuneytið á í markvissu samstarfi við alþjóðastofnanir og samstarfslönd með framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Rammasamningum við áherslustofnanir og frjáls félagasamtök er ætlað að auka sveigjanleika, fyrirsjáanleika og viðbragðsflýti þeirra. Unnið er eftir stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028 en yfirmarkmið þróunarsamvinnu Íslands er útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði sem grundvallast á framtíðarsýn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Uppbygging mannauðs og samfélagslegra grunnstoða með áherslu á mannréttindi og jafnrétti kynjanna |
||
|
Byggðaþróunarverkefni í Malaví, Síerra Leóne og Úganda (HM 4, 3, 6, 5). |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Samstarfsverkefni með Mannfjöldasjóði SÞ um aðgerðir gegn fæðingarfistli í Malaví, Síerra Leóne og Úganda (HM 3, 5). |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Stuðningur við kjarnastofnanir SÞ sem vinna í þágu mannréttinda og kynjajafnréttis (HM 5, 10). |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Viðbrögð gegn loftslagsvánni, efling viðnámsþróttar samfélaga og sjálfbær nýting náttúruauðlinda |
||
|
Verkefni í Síerra Leóne á sviði fiskimála og bláa hagkerfisins (HM 14). |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Þátttaka í verkefni Norræna þróunarsjóðsins (NDF) um aukna nýtingu og aðgang að endurnýjanlegri orku í Afríku (HM 7, 13). |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Stuðningur við GRÓ – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu með færni- og þekkingaruppbyggingu (HM 7, 15, 14, 13). |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Ísland er áreiðanlegur samstarfsaðili í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðarmálum og beitir sér í þágu stöðugleika og friðar |
||
|
Fyrirsjáanlegur og tímanlegur stuðningur við lykilstofnanir SÞ á sviði mannúðaraðstoðar. |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Efnahags- og mannúðarstuðningur við Úkraínu. |
Utanríkisráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 16.372,5 m.kr. og hækkar um 1.362,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Ekki eru gerðar almennar launa- og verðlagsbreytingar á fjárheimild málaflokksins. Ekki er um verulegar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Framlög til málaflokksins aukast um 1.367 m.kr., byggt á spá Hagstofunnar um vergar þjóðartekjur. Tillagan er liður í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028 þar sem stefnt var að því að framlög Íslands til þróunarsamvinnu færu hækkandi yfir tímabil fjármálaáætlunar 2024–2028 úr 0,35% af vergum þjóðartekjum (VÞT) árið 2024 í 0,46% árið 2028. Samkvæmt þeirri stefnu var gert ráð fyrir því að framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu næmu 0,40% af VÞT árið 2026 en að svo stöddu er stefnt að því að þetta hlutfall verði 0,35% á árinu 2026.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 4,8 m.kr. og verður útfærð við gerð rekstraráætlunar fyrir árið 2026.
Fjárlög fyrir árið 2026