Farþega- og farmflutningar á landi
Ákvæði laga um farþega- og farmflutninga á landi eiga við um farþegaflutninga í atvinnuskyni með bifreiðum sem skráðar eru fyrir níu farþega eða fleiri og farmflutninga í atvinnuskyni með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum, þar sem leyfð heildarþyngd fer yfir 3,5 tonn og leyfilegur hámarkshraði ökutækja er 45 km á klst. eða hærri. Þá taka lögin einnig til farþegaflutninga með sérútbúnum bifreiðum og farþegaflutninga í tengslum við ferðaþjónustu með bifreiðum sem rúma færri farþega en níu.
Markmið laganna er m.a. að íslenskir flutningsaðilar fái notið sömu réttinda og aðrir flutningsaðilar innan Evrópska efnahagssvæðisins auk þess sem þeir lúta sömu skyldum. Einnig er lögð áhersla á að réttindi farþega í farþegaflutningum með hópbifreiðum hér á landi séu þau sömu og réttindi farþega annars staðar innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Með lögum nr. 97/2021 um breytingu á lögum um farþega- og farmflutninga á landi var bætt við ákvæðum um annars vegar tímabundna gestaflutninga hér á landi og hins vegar um innheimtu fargjalda í almenningssamgöngum.
Innviðaráðherra fer með yfirstjórn farþega- og farmflutninga, en Samgöngustofa fer með framkvæmd laganna og stjórnvaldsfyrirmæla settra samkvæmt þeim, s.s. varðandi leyfisveitingar.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017Reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 181/2011 frá 16. febrúar 2011 um réttindi farþega í hópbifreiðum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004, nr. 475/2017Umferðaröryggisáætlun
Umferðaröryggisáætlun 2020-2034Umferðaröryggisáætlun - aðgerðaáætlun 2020Gagnlegir tenglar
Samgöngustofa: LeyfisveitingarStofnanir
SamgöngustofaVegagerðinRannsóknarnefnd samgönguslysaFréttir
Innviðaráðuneytið
07 júlí 2026
Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Undirbúningur vegna almyrkvans víða vel á veg kominn
26 júní 2026
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Alþingi samþykkir stofnun innviðafélags
19 júní 2026
Vegasamgöngur