Leigubifreiðar
Lög um leigubifreiðar, nr. 134/2001, taka til fólksbifreiða sem notaðar eru til leigubifreiðaaksturs og eru skráðar fyrir átta farþega eða færri. Leigubifreiðaakstur telst það þegar fólksbifreið er tekin á leigu ásamt ökumanni fyrir tiltekið gjald til flutnings á farþegum og farangri þeirra.
Á 151. löggjafarþingi lagði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fram frumvarp til nýrra laga um leigubifreiðaakstur. Markmið þeirra var að gera nauðsynlegar breytingar á íslensku regluverki um leigubifreiðaakstur til að tryggja að það sé í fyllsta samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins að EES-rétti og að engar aðgangshindranir felist í regluverkinu nema þær sem réttlætanlegar eru vegna almannahagsmuna. Breytingarnar eiga á sama tíma að stuðla að góðu aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur á Íslandi. Frumvarpið byggði að meginstefnu til á tillögum starfshóps um heildarendurskoðun regluverks um leigubifreiðakstur sem skipaður var í október 2017 en skilaði tillögum í formi skýrslu í mars 2018. Frumvarpið náði ekki fram að ganga.
(endurframlagning 151. löggjafarþing 2020)
Samgöngustofa – framkvæmd mála
Samgöngustofa fer með framkvæmd mála er varða leigubifreiðar. Undir starfssvið hennar fellur m.a. útgáfa starfsleyfa leigubifreiðastöðva, útgáfa atvinnuleyfa, útgáfa leyfa fyrir forfallabílstjóra og námskeiðahald. Þá sér stofnunin um starfrækslu gagnagrunns sem m.a. geymir upplýsingar um atvinnuleyfi og heimildir til undanþágu frá akstri eigin bifreiðar.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um leigubifreiðar, nr. 134/2001Reglugerð um leigubifreiðar, nr. 397/2003Umferðaröryggisáætlun
Umferðaröryggisáætlun 2020-2034Umferðaröryggisáætlun - aðgerðaáætlun 2020Gagnlegir tenglar
Samgöngustofa: LeyfisveitingarStofnanir
SamgöngustofaVegagerðinRannsóknarnefnd samgönguslysaFréttir
Innviðaráðuneytið
07 júlí 2026
Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Undirbúningur vegna almyrkvans víða vel á veg kominn
26 júní 2026
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Alþingi samþykkir stofnun innviðafélags
19 júní 2026
Vegasamgöngur