B.11. Fluggáttir

Aðgerðinni er lokið

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Áhugi erlendra aðila á að bjóða upp á beint millilandaflug til Akureyrar hefur farið vaxandi og árið 2025 fengu fjögur fyrirtæki stuðning úr sjóðnum. Þar á meðal var easyJet, sem hlaut hæsta fjárstuðning ársins. Á árinu 2025 fékk sjóðurinn 100 m.kr. viðbótarframlag á fjárlögum og sömu upphæð árið 2026. Heildarfjárveiting Flugþróunarsjóðs á árinu 2026 mun því nema 338 m.kr. Farþegatölur um Akureyrarflugvöll árið 2025 (í tengslum við FS) liggja ekki fyrir, en árið 2024 voru farþegar til Akureyrar með beinu millilandaflugi þeirra sem fengu styrk úr sjóðnum um 7.500. 

Janúar 2024  Flugþróunarsjóður hefur verið starfræktur síðan 2016. Sex fyrirtæki, auk Áfangastaðastofu Norðurlands og Austurbrúar, voru með samninga við sjóðinn árin 2022 og 2023. Auk þess styður sjóðurinn við samstarfsverkefni sem gengur út á að kynna áfangastaði á Norður- og Austurlandi. Vinnan hefur skilað sér í auknum áhuga á millilandaflugi inn á svæðin. Í fjárlögum fyrir árið 2024 fær sjóðurinn sérstakt fjárlaganúmer með 150 m.kr. fjárheimild.

9. janúar 2024  Stutt við uppbyggingu alþjóðaflugs á landsbyggðinni

20. febrúar 2023  Með fjárlögum ársins 2023 ákvað Alþingi að veita 150 m.kr. varanlegt framlag til að viðhalda starfsemi Flugþróunarsjóðs.

13. júlí 2022  Fljúga frá Þýskalandi til Akureyrar og Egilsstaða

Tengiliður    

Helena Karlsdóttir, Ferðamálastofu - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að ferðamenn dreifist jafnar um landið.

Stutt lýsing: Flugþróunarsjóður styðji við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Árangur verði mældur í fjölgun ferðamanna sem koma með flugi/fjölda lendinga.

  • Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið
  • Framkvæmdaraðili: Flugþróunarsjóður. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Innviðaráðuneyti, Isavia, landshlutasamtök sveitarfélaga og áfangastaðastofur
  • Tímabil: 2022–2026. 
  • Tillaga að fjármögnun: Menningar- og viðskiptaráðuneyti