Almennt um byggðamál
Innviðaráðuneytið fer með mál er varða svæða- og byggðamál, svæða- og byggðarannsóknir, atvinnuþróun og atvinnuþróunarfélög. Þá heldur ráðuneytið utan um eftirfarandi verkefni:
Málefni Byggðastofnunar.
Sóknaráætlanir landshluta
- Áhersluverkefni
- Uppbyggingasjóðir
Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar er unnið að eftirfarandi þáttum vegna byggðamála:
- Stuðla að jöfnun búsetuskilyrða m.t.t. raforku og fjarskipta.
- Kannaðar leiðir til að setja skilyrði við kaup á landi sem taka mið af stefnu stjórnvalda um þróun byggðar, landnýtingu og umgengni um auðlindir.Skilgreina hlutverk landshlutasamtaka og styrk sveitarfélaga til að rísa undir nauðsynlegri þjónustu.
- Styrkja lýðræðislega aðkomu íbúa að ákvörðunum um byggðamál í gegnum sóknaráætlanir landshluta.
- Samstarf við sveitarfélögin um gerð þjónustukorts sem sýnir aðgengi landsmanna að allir almennri þjónustu hins opinbera og einkaaðila til að bæta yfirsýn og þannig skapa grundvöll fyrir aðgerðir til að tryggja íbúum þjónustu og jafna kostnað.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál
Stýrihópurinn hefur það hlutverk að efla samhæfingu innan stjórnarráðsins í málefnum sem snúa að byggðamálum og trygga virkt samráð við sveitarstjórnarstigið í þeim málaflokki.
Byggðamálaráð
Byggðamálaráð gerir tillögu til ráðherra að stefnumótandi byggðaáætlun og fimm ára aðgerðaáætlun að fengnum áherslum ráðherra skv. 2. gr. a. laga. nr. 69/2015 um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, sbr. 8. gr. laga nr. 53/2018 um breytingu á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála.
Byggðamálaráð tekur við ábendingum í netfangið [email protected].
Sjá einnig:
Ítarefni varðandi Byggðaáætlun
Þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024Aðgerðaáætlun byggðaáætlunar 2018-2024Stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024 (ensk útgáfa)Greinargerð með tillögu um þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024Nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar með breytingartillöguNefndarálit minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar með breytingartillöguUmræður á Alþingi um þingsályktunartillögunaStofnanir
ByggðastofnunSamband íslenskra sveitarfélagaLandshlutasamtök sveitarfélagaLög og reglur
Lög um byggðaáætlunAlþjóðlegt samstarf
ESPON– svæðasamstarf EvrópusambandsinsUpplýsingar hjá ByggðastofnunNorræna ráðherranefndinNorræna embættismannanefndin um byggðapólitík (EK-R)Nordregio - Nordregio - rannsóknarstofnun í skipulags- og byggðamálum Norðurslóðaáætlunin 2014-2020 – NorthernPeriphery and Arctic (NPA)Upplýsingar hjá ByggðastofnunNORA - Norræna AtlantsnefndinUpplýsingar hjá ByggðastofnunOECD – samstarf í byggðamálumAlmennt um byggðamál