Byggðaáætlun
Byggðaáætlun er lýsing á stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni og samhæfing við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Byggðaáætlun skal hafa að meginmarkmiði að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðalaga um land allt. Sérstök áhersla skal lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Einnig skal gera grein fyrir sérstökum áformum ríkisins um stuðning við atvinnulíf á skilgreindum stuðningssvæðum byggðakorts af Íslandi sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur samþykkt fyrir tiltekið tímabil og tengingu þeirra við sóknaráætlanir.
Með lögum um breytingar á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála nr. 53/2018, sem samþykkt voru á Alþingi í júní 2018, var sett í lög nr. 69/2015 um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, ákvæði um byggðamálaráð og hlutverk þess. Hlutverk byggðamálaráðs er að gera tillögu til ráðherra að stefnumótandi byggðaáætlun til fimmtán ára og fimm ára aðgerðaáætlun að fengnum áherslum ráðherra. Tilgangurinn með nýju lögunum er annars vegar að aðlaga vinnubrögð og aðferðafræði við gerð áætlana samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að nýrri hugsun samhæfðrar og samþættrar stefnumótunar og áætlanagerðar og hins vegar að samhæfa stefnumótun og áætlanagerð við lög um opinber fjármál, nr. 123/2015.
Við undirbúning byggðaáætlunar og fimm ára aðgerðaáætlunar skal haft samráð við öll ráðuneyti á vettvangi stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál. Þá skal haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög. Horfa skal til þeirrar stefnumótunar sem fram kemur í stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga sem gerð er samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Jafnframt skal haft samráð við hagsmunaaðila eftir þörfum og skal almenningi gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og athugasemdum í opnu samráðsferli.
Byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036 var samþykkt í júní 2022 með öllum greiddum atkvæðum.
Byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036 (ensk útgáfa)
Hvítbók um byggðamál (maí 2021)
Grænbók um byggðamál (desember 2020)
Byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 var samþykkt í júní 2018 með öllum greiddum atkvæðum.
- Aðgerðaáætlun byggðaáætlunar 2018-2024Byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 (ensk útgáfa)
Byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 (dönsk útgáfa)
Sjá einnig:
Ítarefni varðandi Byggðaáætlun
Þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036Aðgerðaáætlun byggðaáætlunar 2022-2026Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036(ensk útgáfa)
Lög og reglur
Lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69/2015Stofnanir
ByggðastofnunSamband íslenskra sveitarfélagaLandshlutasamtök sveitarfélagaAlþjóðlegt samstarf
ESPON– svæðasamstarf EvrópusambandsinsUpplýsingar hjá ByggðastofnunNorræna ráðherranefndinNorræna embættismannanefndin um byggðapólitík (EK-R)Nordregio - Nordregio - rannsóknarstofnun í skipulags- og byggðamálum Norðurslóðaáætlunin 2014-2020 – NorthernPeriphery and Arctic (NPA)Upplýsingar hjá ByggðastofnunNORA - Norræna AtlantsnefndinUpplýsingar hjá ByggðastofnunOECD – samstarf í byggðamálumByggðaáætlun