Svæðisbundin flutningsjöfnun
Byggðastofnun fer með framkvæmd laga um svæðisbundna flutningsjöfnun nr. 160/2011. Markmið laganna er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur eru staðsettir nær markaði.
Í lögunum felst heimild til veitingu flutningsjöfnunarstyrkja til einstaklinga eða lögaðila sem stunda framleiðslu á vöru á styrksvæði. Flutningsjöfnunarstyrkir eru veittir vegna flutnings frá styrksvæði ef framleiðslan er annað hvort fullunnin eða hálfunnin vara, þ.e. vara sem hefur farið í gegnum ákveðið framleiðsluferli á styrksvæðinu, eða til styrksvæðis á hrávöru eða hálfunninni vöru, þ.e. vöru sem vantar til að endanlega framleiðsla á vöru geti átt sér stað á styrksvæðinu.
Sjá einnig:
Ítarefni varðandi Byggðaáætlun
Þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024Stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024 (ensk útgáfa)Greinargerð með tillögu um þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024Nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar með breytingartillöguNefndarálit minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar með breytingartillöguUmræður á Alþingi um þingsályktunartillögunaLög og reglur
Lög um byggðaáætlunAlþjóðlegt samstarf
ESPON– svæðasamstarf EvrópusambandsinsUpplýsingar hjá ByggðastofnunNorræna ráðherranefndinNorræna embættismannanefndin um byggðapólitík (EK-R)Nordregio - rannsóknarstofnun í skipulags- og byggðamálumNorðurslóðaáætlunin 2014-2020 – NorthernPeriphery and Arctic (NPA)Upplýsingar hjá ByggðastofnunNORA - Norræna AtlantsnefndinUpplýsingar hjá ByggðastofnunOECD – samstarf í byggðamálumByggðamál