A.06. Aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir

Desember 2025  Starfshópur heilbrigðisráðherra skilaði tillögum 2023 um beitingu ívilnanaheimilda í lögum um Menntasjóð námsmanna, til að auðvelda mönnun heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Í kjölfarið hóf Byggðastofnun vinnu við að skilgreina svæði sem gætu notið ívilnana. Haustið 2024 féllst ráðuneyti háskólamála (HVIN) á skilgreiningu stofnunarinnar á þeim svæðum sem til greina koma við beitingu þeirra við mönnun heilbrigðisstofnana og heilbrigðisráðherra ræddi aðgerðina á fundi með forstjórum heilbrigðisstofnana. HRN hefur hvatt heilbrigðisumdæmin til að hafa frumkvæði að því að hefja samtal við sveitarfélög um möguleika á nýtingu ívilnanaheimilda og hefur aflað upplýsinga frá öllum heilbrigðisstofnunum á þeim svæðum sem skilgreind voru í skýrslu Byggðastofnunar til HVIN. Þegar hafa borist fimm umsóknir frá sveitarfélögum og hafa Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga skilað lögbundnu mati á þeim til menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneytisins. Ákvörðun MNH um beitingu ákvæðisins liggur ekki fyrir og ekki er gert ráð fyrir fjármunum til Menntasjóðs námsmanna í frumvarpi til fjárlaga 2026 til að mæta kostnaði við beitingu þess.

Febrúar 2025  Heilbrigðisráðherra ræddi aðgerðina á fundi með forstjórum heilbrigðisstofnana haustið 2024, en meðal hlutverka heilbrigðisstofnana er að leggja mat á þörf íbúa heilbrigðisumdæmis fyrir heilbrigðisþjónustu og leggja fram áætlun um hvernig þeim þörfum skuli mætt. HRN hefur hvatt heilbrigðisumdæmin til að hafa frumkvæði að því að hefja samtal við sveitarfélög um möguleika á nýtingu ívilnanaheimilda heilbrigðisumdæmisins. Nú þegar liggja fyrir umsóknir sveitarfélaga hjá HVIN um beitingu ívilnana til mönnunar heilbrigðisstofnana og hefur ráðuneytið haft samband við Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga og mun senda þeim innkomnar umsóknir vegna skýrslugerðar skv. 2. mgr. 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna. 

2. október 2024  Í framhaldi af vinnu starfshóps heilbrigðisráðherra sem skilaði tillögum sumarið 2023 um beitingu ívilnanaheimilda í lögum um Menntasjóð námsmanna, til að auðvelda mönnum heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni, hefur háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið nú fallist á skilgreiningu Byggðastofnunar á þeim svæðum sem til greina koma við beitingu þeirra við mönnum heilbrigðisstofnana. Sjá frétt á vef Byggðastofnunar þar sem m.a. má finna stofnunarinnar.

Janúar 2024  Starfshópur heilbrigðisráðherra til jöfnunar á aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu lauk störfum í maí 2023 með skýrslu og tillögum til ráðherra (sjá hér að neðan). Tillögurnar snúa einkum að því hvernig nýta megi heimildir í lögum um Menntasjóð námsmanna til að beita tímabundnum ívilnunum við endurgreiðslu námslána, til að styrkja mönnun sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu, einkum í dreifðum byggðum. Næsta skref er að fram fari skilgreiningarvinna Byggðastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem ætlað er að auðvelda afgreiðslu formlegra erinda sveitarfélaga skv. 1. tölu. 2. mgr. 28. gr. laga um Menntasjóð.

7. júlí 2023  Starfshópur um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu skilar tillögum

5. janúar 2023  Starfshópur skipaður um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu 

Tengiliðir    

Dagmar Huld Matthíasdóttir, heilbrigðisráðuneytinu - [email protected]
Reinhard Reynisson, Byggðastofnun - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að aðgangur að ýmiss konar sérfræðiþjónustu óháð búsetu verði jafnaður.

Stutt lýsing: Skoðað verði hvort fjölga megi sérfræðingum á heilbrigðissviði á landsbyggðinni með því að nýta ákvæði í lögum um Menntasjóð námsmanna þar sem kveðið er á um sérstaka ívilnun vegna námsgreina sem og sérstaka ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum. Lögð verði áhersla á mikilvægi þess að tryggja ýmiss konar sérfræðiþjónustu, til að mynda þjónustu geðhjúkrunarfræðinga, sálfræðinga, talmeinafræðinga og sérfræðilækna, á landsbyggðinni.

  • Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
  • Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun
  • Dæmi um samstarfsaðila: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og sveitarfélög.
  • Tímabil: 2022–2023.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Heilbrigðisstefna og menntastefna.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 3.
  • Tillaga að fjármögnun: 2 millj. kr. úr byggðaáætlun.