B.07. Óstaðbundin störf
| Aðgerðin er í vinnslu | |
|---|---|
Fréttir af aðgerðinni
24. mars 2026 Fimmtíu milljónir til 26 vinnustaðaklasa um land allt.
Desember 2025 Haustið 2024 var ákveðið að veita 150 m.kr. af byggðaáætlun til að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni. Ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um styrk vegna starfa sem ráðið verður í utan þess svæðis, eða ef starfsmaður flytur á landsbyggðina, og er styrknum ætlað að koma til móts við ferða-kostnað og leigu á aðstöðu í vinnustaðaklösum. Veita má styrk til stofnunar vegna starfs til allt að þriggja ára og nemur stuðningur við hvert starf að hámarki 2 m.kr. á ári. Í lok árs 2025 hafa verið gerðir ellefu samningar. Í desember 2025 var auglýst eftir styrkjum vegna vinnustaðaklasa. Þar er hægt að sækja um styrki til að koma nýjum vinnustaðaklösum af stað, vegna rekstrar eða langtímasamninga um fjölgun starfsfólks í vinnustaðaklösum.
11. desember 2025 Opnað fyrir umsóknir um styrki til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.
4. desember 2024 Fyrstu samningarnir undirritaðir.
10. október 2024 Opnað fyrir umsóknir um styrki.
9. október 2024 Rannsókn á reynslu af óstaðbundnum störfum. RHA vann rannsókn, með styrk af byggðaáætlun og frá byggðarannsóknasjóði, um reynslu af óstaðbundnum störfum.
28. ágúst 2024 150 milljónir í styrki til að fjölga óstaðbundnum störfum. Hér er jafnframt að finna frétt af fundi ríkisstjórnarinnar með sveitarstjórnarfólki á Norðurlandi vestra þar sem rætt var um fjölgun óstaðbundinna starfa á landsbyggðinni.
17. apríl 2024 Styrkur úr byggðarannsóknasjóði til að rannsaka óstaðbundin störf.
25. mars 2024 Mögulegt væri að auglýsa 12% starfa hjá ráðuneytum og stofnunum ríkisins sem óstaðbundin. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) gerði fyrir framkvæmdahóp um innleiðingu stefnu stjórnvalda um óstaðbundin störf. Í könnuninni komu einnig fram áhyggjur stjórnenda af auknum kostnaði sem óstaðbundin störf gætu haft í för með sér. Sjá frétt af vef Stjórnarráðsins: Óstaðbundin störf stuðla að búsetufrelsi
15. maí 2023 Ríkisstjórnin samþykkti í lok janúar 2023 að skipa framkvæmdahóp til að annast framkvæmd aðgerðarinnar. Hópurinn tók til starfa í apríl og hann skipa Aðalsteinn Þorsteinsson frá innviðaráðuneyti, Aldís Magnúsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Dagný Jónsdóttir frá forsætisráðuneyti.
Tengiliður
Hólmfríður Sveinsdóttir, innviðaráðuneytinu - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að búsetufrelsi verði eflt með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni.
Stutt lýsing: Störf hjá ríkinu verði ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega, þannig að búseta hafi ekki áhrif á ráðningar. Tekið verði saman yfirlit um fjölda starfsstöðva/-rýma og fjölda ríkisstarfa sem eru óháð staðsetningu. Í kjölfarið verði sett markmið um fjölgun vinnurýma og óstaðbundinna starfa með sem jafnastri dreifingu um landið. Byggðir verði upp vinnustaðaklasar í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila eftir atvikum þannig að góð vinnuaðstaða verði í boði sem víðast um landið. Skoðað verði hvort Byggðastofnun geti boðið lán með veði í slíkum klösum. Settir verði upp samkeppnispottar til að styðja annars vegar við uppbyggingu vinnustaðaklasa og hins vegar við einskiptiskostnað vegna starfa sem staðsett verða í skilgreindum vinnustaðaklösum eða annars staðar utan atvinnusóknar höfuðborgarsvæðisins. Árangur aðgerðarinnar verði metinn út frá fjölda vinnurýma og dreifingu þeirra um landið. Þá verði fylgst með nýtingu þeirra og fjölbreytni starfa.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið í samstarfi við forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun í samstarfi við ráðuneyti og ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu.
- Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, samtök þeirra og fyrirtæki.
- Tímabil: 2022-2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna í málefnum sveitarfélaga 2019–2033.
- Tenging við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9 og 11, einkum undir¬markmið 9.1, 9.4 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 298 millj. kr. af byggðaáætlun.