B.06. Staðarval ríkisstarfa

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Ný Umhverfis- og orkustofnun er með höfuðstöðvar á Akureyri og ný Náttúruverndarstofnun með höfuðstöðvar á Hvolsvelli. Stofnanirnar tóku til starfa í janúar 2025. Við framfylgd tillagna til hagræðingar í ríkisrekstri sem hagræðingarhópur stjórnvalda lagði til í mars 2025 voru ráðuneyti hvött til að hafa byggðasjónarmið til hliðsjónar. Aðgerðin tengist jafnframt aðgerð B.7 Óstaðbundin störf.

Febrúar 2025  Aðgerðin tengist aðgerð B.7 Óstaðbundin störf. Til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu skal jafnframt meta með hlutlægum hætti hvort staðsetja megi nýja starfsemi eða breytta starfsemi á vegum ríkisins verði utan höfuðborgarsvæðisins.

Tengiliður   

Guðjón Björn Guðbjartsson, forsætisráðuneyti - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að dreifing starfa á vegum ríkisins verði jöfnuð og stuðlað að fjölbreyttu atvinnulífi sem víðast um landið.

Stutt lýsing: Þegar ný starfsemi hefst eða breytingar verða á starfsmannahaldi á vegum ríkisins verði metið með hlutlægum hætti hvort staðsetja megi störfin/starfsemina utan höfuðborgarsvæðisins.

  • Ábyrgð: Forsætisráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Forsætisráðuneytið, önnur ráðuneyti og stofnanir þeirra.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun. 
  • Tímabil: 2022–2026
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna í málefnum sveitarfélaga 2019–2033.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9 og 11, einkum undirmarkmið 9.1, 9.4 og 11.a.
  • Tillaga að fjármögnun: Forsætisráðuneyti