B.04. Stafrænt forskot

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Námskeiðið „Stafrænt forskot“ hefur ekki verið haldið síðan Nýsköpunarmiðstöð var lögð niður. Í ljósi hraðra tæknibreytinga var ákveðið að setja aukinn fókus á vinnu við aðgerðaáætlun um gervigreind sem birt var í júlí 2025. Þar er m.a. unnið að því að koma á fót miðstöð gervigreindar og máltækni, miðlægs vettvangs fyrir málefni gervigreindar á Íslandi með stuðningi hins opinbera, háskóla- og vísindasamfélagsins, sveitarfélaga, samtaka á vinnumarkaði og atvinnulífsins. Markmiðið er að efla stafræna hæfni og nýsköpunarstarfsemi í öllum landshlutum. Miðstöðin verði vettvangur fyrir ráðgjöf og samræmingu í fræðslu og hagnýtingu gervigreindar og máltækni og tengi saman fyrirtæki, stofnanir, þróunaraðila, fjármögnun og sérfræðinga til að hraða ábyrgri upptöku gervigreindar og stuðla að jöfnu aðgengi og fræðslu um allt land, óháð búsetu. Jafnframt verður henni ætlað að styðja við innleiðingu aðgerðaáætlunar stjórnvalda með greiningum, faglegri ráðgjöf og reglulegum mælingum á stöðu innleiðingar í atvinnulífi, hjá hinu opinbera og sveitarfélögum, með það að markmiði að efla íslenskt samfélag. Áætlað er að miðstöðin hefji starfsemi sína í byrjun árs 2026.

Janúar 2024  Viðræður eru í gangi við einkaaðila um framkvæmd aðgerðarinnar. Stefnt er að undirritun samnings í byrjun árs 2024.

Tengiliður  

Lóa Auðunsdóttir, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneyti - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að fyrirtæki nýti stafræna tækni til vaxtar og viðnámsþróttar í ört breytilegu viðskiptaumhverfi.

Stutt lýsing: Fyrirtæki verði hvött til að hagnýta stafræna tækni til að auka samkeppnishæfni og nýbreytni í rekstri. Jafnframt verði þau hvött til að nýta stafrænar lausnir til að sækja fram á sviði nýsköpunar og vöruþróunar. Boðið verði upp á aðgang að fræðslu og fyrirlestrum sérfræðinga um nýtingu stafrænnar tækni, svo sem sjálfvirknivæðingu, bálkakeðjutækni, sýndarveruleika og gervigreind, við daglegan rekstur og nýsköpun. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur í fjölda fyrirtækja sem taka þátt.

  •  Ábyrgð: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
  •  Framkvæmdaraðili: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti og Samtök verslunar og þjónustu.
  •  Dæmi um samstarfsaðila: Háskólinn á Bifröst, Samtök verslunar og þjónustu, landshlutasamtök sveitarfélaga, áfangastaðastofur og símenntunarmiðstöðvar. 
  •  Tímabil: 2022–2024.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Nýsköpunarstefna, klasastefna.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 8 og 9, einkum undirmarkmið 8.3, 9.4 og 9.5.
  •  Tillaga að fjármögnun: 12 millj. kr. af byggðaáætlun