C.01. Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða

Litur sem táknar stöðu aðgerðar Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

18. febrúar 2026  Fjórtán verkefni fá úthlutað 170 milljónum til að efla byggðir landsins.

24. október 2025  Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða fyrir árið 2026.

11. mars 2025  Þrettán verkefni fá úthlutað 140 milljónum til að efla byggðir landsins.

28. október 2024  Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða.

15. febrúar 2024  Tíu verkefni fá alls 130 milljónir króna af byggðaáætlun.

2. nóvember 2023  Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða.

14. febrúar 2023  Tólf verkefni fá 130 milljónir til að efla byggðir landsins.

29. nóvember 2022  Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða.

Tengiliður    

Sigurður Árnason, Byggðastofnun - [email protected]

Aðgerðin 

Markmið: Að heimafólki verði færð aukin ábyrgð á ráðstöfun fjármuna og sóknar¬áætlanir landshluta verði tengdar við byggðaáætlun.

Stutt lýsing: Landshlutasamtök sveitarfélaga geti í samstarfi við haghafa í hverjum landshluta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar verði í forgangi. Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf með gerð viðaukasamninga við sóknaráætlanir viðkomandi landshluta um tiltekin verkefni eftir forgangsröðun heimafólks.

  • Ábyrgð: Innviðaráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál, ráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, háskólar, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar.
  • Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Sóknaráætlanir landshluta, stefnur/áætlanir ríkisins sem hafa áhrif á byggðaþróun.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undir¬markmið 11.a.
  •  Tillaga að fjármögnun: 700 millj. kr. úr byggðaáætlun.