A.03. Bráðaviðbragð neyðarþjónustu

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Unnin hefur verið greining á vegum DMR og HRN sem fólst m.a. í að kortleggja fyrirkomulag og störf vettvangsliða um landið, og kanna viðhorf íbúa á landsbyggðinni til bráðaviðbragðs í nærumhverfi, sem nýtast mun við forgangsröðun. Áfram verður unnið að því að tryggja góða upplýsingagjöf til almennings um fyrstu viðbrögð. Forrituð hefur verið gátt fyrir ytri og innri aðila til að skrá upplýsingar um t.d. mikilvæga staði sem þarf að kortleggja. Unnið var með Samsýn og HMS að því að fá nákvæmar upplýsingar og hnitsetningar á mikilvægum stöðum. Hannað hefur verið miðlægt kort sem sýnir staðsetningu hjartastuðtækja um landið sem verður gert aðgengilegt almenningi og viðbragðsaðilum.

Febrúar 2025  Til skoðunar er samstarf við Neyðarlínuna til að vinna umgjörð kringum vettvangsliða björgunarsveita. Forrituð hefur verið gátt fyrir ytri og innri aðila til að skrá inn upplýsingar um t.d. mikilvæga staði sem þarf að kortleggja. Unnið var með Samsýn og HMS að því að fá nákvæmar upplýsingar og hnitsetningar á mikilvægum stöðum. Í undirbúningi er vinna við umgjörð um vettvangsliða björgunarsveita sem áætlað er að ljúki árið 2025.

September 2024  Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja. Skýrsla starfshóps.

Janúar 2024  Unnin hefur verið greiningarvinna á vegum DMR og HRN sem fólst m.a. í að kortleggja fyrirkomulag og störf vettvangsliða um landið, kanna viðhorf íbúa landsbyggðarinnar til bráðaviðbragðs í sínu nærumhverfi til að átta sig á áherslum til forgangsröðunar. Unnið er að kortlagningu viðbragðs tengt útköllum til að hægt sé að átta sig á hvar eru mögulega eyður í viðbragði, mögulega á svæðum sem eru afskekkt en fjölsótt. Forrituð hefur verið gátt fyrir ytri og innri aðila til að skrá inn upplýsingar um t.d. mikilvæga staði sem þarf að kortleggja. Unnið var með Samsýn og HMS að því að fá nákvæmar upplýsingar og hnitsetningar á mikilvægum stöðum.

13.01.23 39 tillögur viðbragðsteymis að umbótum í bráðaþjónustu á landsvísu

Tengiliðir 

Helga Harðardóttir, heilbrigðisráðuneytinu - [email protected]
Kjartan Jón Bjarnason, dómsmálaráðuneytinu - [email protected] 

Aðgerðin

Markmið: Að neyðarþjónusta verði bætt og öryggi aukið um land allt.
Stutt lýsing: Aðgerðin verði tvíþætt. Annars vegar verði viðbragðstími neyðarþjónustu greindur og staðan kortlögð til að unnt verði að stytta tímann og auka öryggi um land allt. Mæling á viðbragðstíma lögreglu og annarra viðbragðsaðila verði samræmd, greint hvort þjónustu- og öryggisstig sé sambærilegt um allt land og metið hvaða breytinga sé þörf og hvernig bæta megi þjónustu og öryggi. Hins vegar verði nærsamfélagið virkjað til að auka líkur á góðri útkomu í bráðaaðstæðum fyrir bráðaþjónustu og sjúkraflutninga. Stutt verði við umgjörð um samræmda skipulagða þjónustu vettvangsliða um landið, svo sem björgunarsveita, RKÍ og annarra í nærumhverfi, með því að námskeiðum fyrir vettvangsliða verði fjölgað.
  • Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið.
  • Framkvæmdaraðili: Ríkislögreglustjóri, heilbrigðisstofnanir og heilsugæslur
  • Dæmi um samstarfsaðila: Lögreglustjórar, sveitarfélög, slökkvilið, Rauði krossinn á Ís¬landi, björgunarsveitir, félagasamtök, Sjúkraflutningaskólinn og Neyðarlínan. 
  • Tímabil: 2022–2025.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Löggæsluáætlun, aðgerðaáætlun fyrir bráðaþjónustu og sjúkraflutninga.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 1, 3, 11 og 16, einkum undirmarkmið 1.5, 3.6, 11.5, 11.a og 16.6.
  • Tillaga að fjármögnun: 30 millj. kr. af byggðaáætlun.