A.02. Jöfnun orkukostnaðar

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Framlög af fjárlögum til jöfnunar orkukostnaðar árin 2022-2026 eru alls 25.546 m.kr. Aðgerðin er þríþætt. A) Framlög á fjárlögum til jöfnunar orkukostnaðar hafa hækkað úr 3.276 m.kr. árið 2018 í 5.698,6 m.kr. árið 2026 og fer meginhlutinn annars vegar til að niðurgreiða að fullu kostnað við dreifi- og flutningskostnað raforku til hitunar lögheimila hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma og hins vegar til að jafna kostnað við dreifingu raforku í dreifibýli. B) Styrkjakerfi til kaupa á varmadælum og öðrum orkusparandi tækjabúnaði til húshitunar á rafhituðum svæðum hefur verið einfaldað og bætt. C) Gert er ráð fyrir að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggi fram frumvarp um hækkun jöfnunargjalds raforku á vorþingi 2026. Verði það frumvarp að lögum verður fullri jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku milli dreifbýlis og þéttbýlis náð frá og með 1. júlí 2026.   

Febrúar 2025  Framlög af fjárlögum til jöfnunar orkukostnaðar árin 2022-2025 eru alls 19.848 m.kr. Aðgerðin er þríþætt. A) Framlög á fjárlögum til jöfnunar orkukostnaðar hafa hækkað úr 3.276 m.kr. árið 2018 í 5.209,5 m.kr. árið 2025 og fer meginhlutinn annars vegar til að niðurgreiða að fullu kostnað við hitun íbúðahúsnæðis hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma til jafns við kostnað notenda hjá dýrustu jarðvarmaveitunum og hins vegar til jöfnunar kostnaðar við dreifingu raforku í dreifibýli. B) Styrkjakerfi til kaupa á varmadælum og öðrum orkusparandi tækjabúnaði til húshitunar á rafhituðum svæðum hefur verið einfaldað og bætt. C) URN leitar leiða til að tryggja aukna jöfnun hvað varðar dreifingu raforku í dreifbýli. 

Janúar 2024  Framlög á fjárlögum til jöfnunar orkukostnaðar hafa hækkað úr 3.276 m.kr. árið 2018 í 4.784 m.kr. árið 2023. Framlagið árið 2023 skiptist í meginatriðum þannig að 2.321 m.kr. er varið til jöfnunar kostnaðar við dreifingu raforku og 2.373 m.kr. til niðurgreiðslna húshitunar. Kostnaður við hitun íbúðarhúsnæðis hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma er niðurgreiddur að fullu til jafns við kostnað notenda hjá dýrustu jarðvarmaveitunum og styrkjakerfi til kaupa á varmadælum og öðrum orkusparandi tækjabúnaði til húshitunar á rafhituðum svæðum hefur verið einfaldað og bætt.

16.02.23 Framlög af fjárlögum til jöfnunar orkukostnaðar árið 2022 voru 4.535 m.kr. og verða 4.784 m.kr. árið 2023. Í fylgiriti með fjárlögum 2023 er gert ráð fyrir að framlögin verði 4.817 m.kr. árið 2024 og 4.842 m.kr. árið 2025. Samtals eru þetta 18.978 m.kr. árin 2022-2025.

Tengiliður

Hreinn Hrafnkelsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að orkukostnaður í dreifbýli og þéttbýli verði jafnaður, bæði hvað varðar dreif¬ingu á raforku og húshitunarkostnað.

Stutt lýsing: Þar sem dreifikostnaður raforku er meiri í dreifbýli en þéttbýli og kostnaður við húshitun hærri á stöðum sem ekki búa við möguleika á hitaveitu með jarðvarma verði gripið til jöfnunaraðgerða. Markmið um jöfnun orkukostnaðar á landsvísu sem er einn þáttur í jöfnun búsetuskilyrða og atvinnutækifæra verði tryggð með jöfnunar¬framlagi og niðurgreiðslum úr ríkissjóði. Sérstaklega verði skoðaðar skilgreiningar dreifiveitna í dreif- og þéttbýli og miðað þar við skilgreiningar í aðalskipulagi.

  • Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
  • Framkvæmdaraðili: Orkustofnun.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun. 
  • Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Orkustefna.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 7, einkum undirmarkmið 7.1.
  • Tillaga að fjármögnun: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið