C.06. Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga
| Aðgerðin er í vinnslu | |
|---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Desember 2025 58 af 62 sveitarfélögum landsins staðfestu endurskoðun húsnæðisáætlunar fyrir árið 2025 í áætlanakerfinu. Gildar áætlanir ná til 99% íbúa landsins. Stöðug framþróun hefur verið í stafrænu áætlanakerfi í því skyni að auka aðgengi sveitarfélaga að áreiðanlegum upplýsingum og auka gæði áætlananna. HMS vinnur nú með sveitarfélögum að endurskoðun og uppfærslu húsnæðisáætlana þeirra fyrir 2026 og skulu staðfestar áætlanir liggja fyrir frá sveitarfélögum fyrir 20. janúar ár hvert. Niðurstöður húsnæðisáætlana eru aðgengilegar öllum í mælaborði HMS sem og skýrslur hvers sveitarfélags á vef HMS. Þar má m.a. finna spá um þróun mannfjölda, áætlun um hversu margar íbúðir verði þörf fyrir á næstu árum og hvernig sveitarfélögin hyggist skapa skilyrði til uppbyggingar með framboði byggingarhæfra lóða. Húsnæðisáætlanir eru nú orðnar eitt helsta stjórntæki stjórnvalda í stefnumótun og ákvarðanatöku í húsnæðismálum.
Febrúar 2025 Stafrænt áætlanakerfi var innleitt árið 2022. 62 af 64 sveitarfélögum landsins staðfestu endurskoðun fyrir 2024 og ná áætlanirnar til 99,8% af íbúum landsins. HMS vinnur nú með sveitarfélögum að endurskoðun og uppfærslu húsnæðisáætlana fyrir 2025, sem skulu liggja fyrir 20. janúar ár hvert. Niðurstöður húsnæðisáætlana eru í mælaborði HMS. Þar er m.a. spá um þróun mannfjölda, áætlun um hversu margar íbúðir verði þörf fyrir á næstu árum og hvernig sveitarfélögin hyggist skapa skilyrði til uppbyggingar með framboði byggingarhæfra lóða.
Desember 2022 Hvað er byggt í hverju sveitarfélagi? Frétt af vef innviðaráðuneytisins.
Tengiliður
Lísa Margrét Sigurðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðuneyti - [email protected]
Stutt lýsing: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vinni að því að innleiða stafrænar hús¬næðis¬áætlanir með það að markmiði að auðvelda sveitarfélögum gerð þeirra og uppfærslu og auka áreiðanleika þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Sveitarfélög skili áætlunum sínum í áætlanakerfi HMS. Stuðlað verði að því að sveitarfélög vinni saman að gerð húsnæðisáætlana, t.d. á vettvangi landshlutasamtaka. Framkvæmd verði sameiginleg þarfagreining, m.a. í tengslum við landsskipulagsstefnu, svæðisskipulag og þá þætti í aðalskipulagi sem snúa að framboði og eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði, einkum til leigu. Í húsnæðisáætlunum komi fram hvernig íbúðaþörf mismunandi hópa verði mætt, þ.m.t. að fötluðu fólki sem býr á stofnunum eða herbergjasambýlum verði boðnir aðrir búsetukostir og staðan á því verkefni kortlögð og metin við árlega endurskoðun húsnæðisáætlunar.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög og Skipulagsstofnun.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Húsnæðis- og skipulagsáætlanir sveitarfélaga, landsskipulagsstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undirmarkmið 11.1, 11.3 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 12,5 millj. kr. af byggðaáætlun.