C.02. Brothættar byggðir
| Aðgerðin er í vinnslu | |
|---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Desember 2025 Árið 2025 var Byggðastofnun í samstarfi við fjögur byggðarlög. Alls hafa 16 byggðarlög tekið þátt eða hafið þátttöku í grunnverkefni Brothættra byggða. Í árslok 2023 lauk verkefninu í Árneshreppi og í árslok 2024 lauk verkefnum í Strandabyggð og á Bakkafirði eftir eins árs framlengingu á hvorum stað. Samstarf hófst í Reykhólahreppi í lok árs 2024 og í Kaldrananeshreppi árið 2025. Á árinu 2025 var einnig hafið samstarf í tveimur fyrrum þátttökubyggðarlögum, Raufarhöfn og Öxarfjarðar-héraði, í tilraunaverkefni um eftirfylgni til þriggja ára, „Brothættar byggðir II“. Starfsfólk Byggðastofnunar hefur á árunum 2024 og 2025 farið yfir verklag með það fyrir augum að uppfæra verkefnislýsingu. Framlag í frumkvæðissjóði til að styðja við framfaraverkefni í hverju byggðarlagi hefur hækkað og samnings-tími nýrra verkefna lengdur í fimm ár. Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á árinu 2024 að leggja fram aukaframlag frá stofnuninni að upphæð 135 m.kr. til Brothættra byggða árin 2025-2027 og þeir fjármunir nýtast í grunnverkefni Brothættra byggða en einnig í tilraunaverkefnunum tveimur.
13. maí 2025 Betri Bakkafjörður - lokaíbúafundur.
24. mars 2025 Námskeið fyrir verkefnastjóra í Brothættum byggðum.
20. mars 2025 Auknir fjármunir - aukin tækifæri.
13. ágúst 2025 Ársskýrsla Brothættra byggða fyrir árið 2024. Hér má nálgast frétt um skýrsluna á vef Byggðastofnunar.
25. febrúar 2025 Sterkar Strandir, lokaíbúafundur.
Febrúar 2025 Árið 2024 var Byggðastofnun í samstarfi við fjögur byggðarlög. Frá árinu 2013 hafa 14 byggðarlög tekið þátt. Þar sem stofnunin er ekki lengur formlegur þátttakandi í verkefnum er áfram náið samstarf. Þátttöku Árneshrepps lauk í júní 2024 og í lok árs 2024 lauk formlegri þátttöku Strandabyggðar og Bakkafjarðar, eftir eins árs framlengingu á báðum stöðum. Samstarf hófst í Reykhólahreppi í lok árs 2024. Árið 2024 var farið yfir verklag og m.a. skoðuð sambærileg verkefni í nágrannalöndum. Þegar hefur framlag verið hækkað í frumkvæðissjóði til að styðja við framfaraverkefni í hverju byggðarlagi.
1. október 2024 Byggðastofnun leggur til 135 m.kr. viðbótarframlag.
10. júlí 2024 Samtals 66 frumkvæðisverkefni í fullum gangi.
26. júní 2024 Framtíðarnefnd tekur við keflinu í Árneshreppi.
3. maí 2024 Árskýrsla Brothættra byggða fyrir árið 2023.
Janúar 2024 Árið 2023 var Byggðastofnun í samstarfi við fimm byggðarlög og sjö árið 2022. Þó að stofnunin sé ekki lengur formlegur þátttakandi í verkefnum er áfram náið samstarf. Árið 2022 hófu Dalabyggð og Stöðvarfjörður þátttöku en formlegri þátttöku Grímseyjar og Þingeyrar lauk. Bakkafjörður og Strandabyggð hafa fengið framlengingu út árið 2024. Í árslok 2023 lauk verkefninu í Árneshreppi, en gert er ráð fyrir lokaíbúafundi þar í júní 2024.
Október 2023 Málþing um brothættar byggðir haldið á Raufarhöfn 5. október. Hér má sjá frétt um málþingið og hér er að finna áhrifamat á verkefninu Brothættar byggðir sem KPMG vann.
24. maí 2023 Öll vötn til Dýrafjarðar, lokaíbúafundur
8. mars 2023 Glæðum Grímsey. lokaíbúafundur.
Tengiliðir
Helga Harðardóttir, Byggðastofnun - [email protected]
Kristján Þ. Halldórsson, Byggðastofnun - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum.
Stutt lýsing: Haldið verði áfram með verkefnið Brothættar byggðir þar sem leitað er lausna á bráðum vanda á tilteknum svæðum vegna fólksfækkunar og erfiðleika í atvinnulífi undangengin ár. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur í íbúaþróun í þátttökubyggðarlögum.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Íbúar viðkomandi byggðarlaga, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, ráðuneyti og stofnanir.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 8, 9 og 11, einkum undirmarkmið 8.3, 8.9, 9.4 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 600 millj. kr. úr byggðaáætlun.