C.16. Jafnrétti í sveitarstjórnum

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Í lok árs 2024 tóku fimm kjörnir fulltrúar frá fimm sveitarfélögum þátt í vinnustofu þar sem safnað var gögnum og upplýsingum fyrir vinnu við gátlista. Í kjölfarið unnu ráðgjafar Kveikju og sérfræðingur Jafnréttisstofu gátlista fyrir sveitarstjórnir um mikilvægi og ávinning af fjölbreytileika í sveitarstjórnum. Gátlistinn var birtur á haustið 2025 á heimasíðu Jafnréttisstofu, hann var kynntur á byggðaráðstefnu Byggðastofnunar og fjöldi kynningarpósta semdir út. Í byrjun árs 2026 mun vitundarvakningin Játakið – jafnréttisátak í fjölbreytni fara í loftið. Þar verður hvatt til þess að hafa fjölbreytileika í huga þegar raðað er á lista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar ásamt því að hvetja til þess að kjósa jafnrétti.

Ágúst 2025 Gátlisti (handbók) verður kynntur sveitarstjórnum í haust. Hann verður einnig kynntur á byggðaráðstefnu Byggðastofnun í byrjun nóvember. Þá verður hann samtvinnaður við #játak-kynningarefnið sem verður dreift í aðdraganda sveitarstjórnakosninga.

Febrúar 2025  Í byrjun árs 2024 var lokið við stutt viðtöl við kjörinna fulltrúa af erlendum uppruna og niðurstöður teknar saman. Undirbúningur fyrir vinnustofu með kjörnum fulltrúum fór í gang á vordögum 2024. Leitað var eftir fulltrúum frá 2-5 sveitarfélögum til að taka þátt í gerð gátlista eða handbókar um hvernig hægt er að ýta undir þátttöku fólks með fjölbreyttan bakgrunn í stjórnun sveitarfélaga. Fimm kjörnir fulltrúar frá fimm sveitarfélögum tóku þátt í vinnustofu í nóvember sem Kveikja stýrði og hélt utan um ásamt sérfræðingi Jafnréttisstofu. Unnið er að gátlista sem veður birtur og kynntur sveitarstjórnum vorið 2025.

Janúar 2024  Í desember 2023 var haldinn fjarfundur með kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum þar sem áhersla var á fræðslu og umræður um mikilvægi fjölbreytileika í stjórnun nærsamfélaga. Á fundinum var kynning frá Árósum um íbúðalýðræði og stefnu þeirra varðandi þátttöku íbúa. Hagstofan fór yfir kosningaþátttöku í síðustu sveitarstjórnarkosningum og sveitarstjóri Mýrdalshrepps sagði frá verkefnum tengdum fjölbreytileika hjá sveitarfélaginu. Þá er óformleg könnun á meðal kjörinna fulltrúa af erlendum uppruna hafin. Könnunin er í formi stuttra samtala þar sem markmiðið er að fá betri hugmynd um hvernig hægt er að fá fleiri erlenda íbúa í sveitarstjórnarstarf. 

Tengiliður    

Sunna Diðriksdóttir, dómsmálaneyti - [email protected]  

Aðgerðin

Markmið: Að sveitarstjórnir verði efldar og aukin vitund sköpuð um mikilvægi fjölbreyttra sjónarmiða innan þeirra.

 Stutt lýsing: Stuðlað verði að því að sveitarstjórnir endurspegli fjölbreytileika mannlífsins til þess að ákvarðanataka í þágu þjónustu við íbúa sé sem best og í samræmi við áætlanir sveitarfélaga í jafnréttismálum. Unnið verði markvisst að því að viðhalda jöfnu kynjahlutfalli í sveitarstjórnum og fólk með fjölbreyttan bakgrunn, t.d. af erlendum uppruna, verði hvatt til þátttöku í stjórnun nærsamfélagsins. Samhliða verði unnið að því að laga starfsaðstæður í sveitarstjórnum að fjölbreyttum aðstæðum fólks og stutt við möguleika á að samræma starfið fjölskyldu- og einkalífi.

  • Ábyrgð: Forsætisráðuneytið
  • Framkvæmdaraðili: Jafnréttisstofa
  • Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, Fjölmenningarsetur og Samband íslenskra sveitarfélaga.
  • Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna í málefnum sveitarfélaga 2019–2033.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 5, einkum undirmarkmið 5.5.
  • Tillaga að fjármögnun: 3 millj. kr. af byggðaáætlun.