C.05. Húsnæðismál
| Aðgerðin er í vinnslu | |
|---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Desember 2025 Samstarfsvettvangurinn Tryggð byggð hefur fest sig í sessi. Unnið er í nánu samstarfi með sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins við að leita leiða til þess að fjölga íbúðum í samræmi við þörf á hverju svæði og efla þannig atvinnulíf. Uppbyggingarverkefni vettvangsins telja nú um 1.450 íbúðir í 49 sveitarfélögum um allt land. Árið 2025 hefur einkennst af nokkurri óvissu sökum langvarandi hás vaxtastigs. Virkt samtal hefur verið við sveitarfélög og húsnæðisfélög sem starfa á landsbyggðinni og hefur verið lögð sérstök áhersla á að aðstoða Brák íbúðafélag hses. í sínum verkefnum. Einnig hefur m.a. verið leitað leiða til þess að fjölga íbúðum í Bolungarvík og undirrituð viljayfirlýsing um framtíðaruppbyggingu í Fjarðabyggð. Á árinu hafa verið haldnir átta opnir kynningar- og upplýsingafundir þar sem farið yfir stöðu, áskoranir og framtíðarhorfur, auk þess að kynna úrræði sem HMS hefur upp á að bjóða í þeim tilgangi ná til hagaðila og uppbyggingaraðila.
Febrúar 2025 Í nánu samstarfi við sveitarfélög á landsbyggðinni er unnið að því að fjölga íbúðum í samræmi við þörf á hverju svæði. Áhersla er lögð á að auka fjölbreytni í vali og sérstök áhersla lögð á fjölgun íbúða fyrir fólk sem stendur hallari fæti á húsnæðismarkaði. Flest verkefnin eru unnin undir hatti Tryggðar byggðar sem er samstarfsvettvangur um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni og telja uppbyggingarverkefnin um 1300 íbúðum í 45 sveitarfélögum. Árið 2024 voru haldnir kynningarfundir í öllum átta landshlutnum þar sem farið var yfir stöðu, áskoranir og framtíðarhorfur íbúðauppbyggingar ásamt því hvaða verkefni væru í gangi innan Tryggðar byggðar á hverjum stað og kynnt voru úrræði sem HMS hefur uppá að bjóða.
Mars 2023 Vakin er athygli á vefsíðunni Tryggð byggð þar sem finna má fréttir og ýmsan fróðleik um aðgerðina.
Tengiliður
Lísa Margrét Sigurðardóttir, félaga- og húsnæðismálaáðuneyti - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að tryggt verði nægilegt framboð af fjölbreyttu íbúðarhúsnæði með fjölgun íbúða á svæðum þar sem skortur á hentugu húsnæði hamlar eðlilegri framþróun og upp¬byggingu atvinnulífs.
Stutt lýsing: Gripið verði til margvíslegra aðgerða til að bregðast við skorti á hentugu íbúðarhúsnæði, hvort sem er til leigu eða kaupa, á svæðum utan höfuðborgarsvæðisins þar sem bygging íbúða hefur verið í lágmarki eða sérstök vandkvæði eru á að fá fjármögnun á almennum markaði. Slíkar aðgerðir geti til að mynda falist í viðbótarframlagi til almennra íbúða (sérstakt byggðaframlag), lánveitingum til nýbygginga, samstarfi við Leigufélagið Bríeti um framboð á leiguíbúðum og stuðningi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á hönnunar- og undirbúningsstigi og verið liður í verkefninu Tryggð byggð. Markaðsbrestur á mismunandi svæðum verði greindur, m.a. til að nýta megi sem best húsnæðisstuðning, svo sem í formi viðbótarstofnframlaga. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur í fjölda íbúða sem byggðar verða á fyrrnefndum svæðum.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Leigufélagið Bríet, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga og Byggðastofnun.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Húsnæðis- og skipulagsáætlanir sveitarfélaga, landsskipulagsstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undirmarkmið 11.1, 11.3 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 12,5 millj. kr. af byggðaáætlun.