B.08. Miðstöð norðurslóðamála
| Aðgerðin er í vinnslu | |
|---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Desember 2025 Á vegum Norðurslóðanets Íslands hafa verið haldnar 20 þematískar vefráðstefnur á vefnum Share Your North sem Norðurslóðanetið hefur veg og vanda af að skipuleggja ásamt samstarfsaðilum. Samtals hafa yfir áttatíu innlendir og erlendir aðilar tekið þátt í skipulagningu viðburðanna og frummælendur hafa verið um 120 íslenskir og erlendir sérfræðingar. Þemu hafa m.a. tengst endurnýjanlegum orkugjöfum þ.m.t. sólarorku úr geimnum, málefnum kynjanna, vísindasamstarfi, ungmennum, öryggismálum og fæðuöryggi. Einnig stendur Norðurslóðanet fyrir nýju hlaðvarpi Speaking of the Arctic og er fyrsta þáttinn að finna á vefsíðu Share Your North. Kortlagningu norðurslóða-tengdrar starfsemi á Norðausturlandi lauk á árinu 2025 og skýrsla er aðgengileg á vef Norðurslóðanetsins.
Febrúar 2025 Á vegum Norðurslóðanets Íslands hafa verið skipulagðir 18 þematískir vefviðburðir á Share your North vettvanginum með þátttöku innlendra og erlendra sérfræðinga og í samvinnu við fjölbreytta aðila. Þar af voru á árinu 2024 skipulagðir sex viðburðir um málefni orku, vísinda, kynja, ungmenna og öryggis. Meðal samstarfsaðila voru WIRE (Women in Renewable Energy), ArcticNet, Arctic Eieder Society, Sendiráð Kanada á Íslandi, Sendiráð Íslands í Kanada, Polar Knowledge, Háskólinn á Akureyri, Varðberg, utanríkisráðuneytið og sendiráð Noregs á Íslandi og SSNE. Hér er að finna kortlagningu norðurslóðatengdra starfsemi á Norðausturlandi.
Janúar 2024 Skipulagðir hafa verið þematískir vefviðburðir á Share your North vettvanginum með þátttöku innlendra og erlendra stofnana og sérfræðing. Einnig var vefviðburður um staðalímyndir frumbyggja á norðurslóðum í samvinnu við North American and Arctic Defence Security Network.
Bergdís Ellertsdóttir, utanríkisráðuneytinu - [email protected]
Embla Eir Oddsdóttir, Norðurslóðanet Íslands - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að staða Akureyrar sem miðstöðvar norðurslóðamála á landsvísu verði styrkt og samstarf þeirra fjölmörgu aðila sem hafa aðkomu að málaflokknum eflt.
Stutt lýsing: Stutt verði við starfsemi Norðurslóðanetsins varðandi stafræna sókn, upp¬bygg¬ingu samstarfsnets og þátttöku í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum..
- Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Norðurslóðanetið.
- Dæmi um samstarfsaðila: Önnur ráðuneyti, landshlutasamtök sveitarfélaga og sveitarfélög.
- Tímabil: 2022–2024.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna Íslands í málefnum norðurslóða.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9, 13 og 17, einkum undirmarkmið 9.5, 13.2 og 17.16.
- Tillaga að fjármögnun: 9 millj. kr. úr byggðaáætlun.