C.15. List fyrir alla

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Skólaárið 2024-2025 voru 17 verkefni á ferðinni um landið sem tæplega 14 þúsund nemendur nutu og 93 listamenn komu fram. List fyrir alla tekur þátt í margs konar samstarfi við menningarstofnanir á landsvísu svo og erlendu samstarfi til að jafna enn frekar aðgengi barna að menningu og listum, óháð búsetu og efnahag. Í nóvember 2025 stóð List fyrir alla fyrir barnamenningarráðstefnunni „Öll börn með!“ á Akranesi. Um 80 þátttakendur víðs vegar af landinu tóku þátt.

19. nóvember 2025  Öll börn með! Öflug barnamenningarráðstefna á Akranesi.

Júní 2025  Verkefni sem skólabörnum stendur til boða starfsárið 2025-2026.

12. febrúar 2025  Auglýst eftir umsóknum á sviði barnamenningar.

Febrúar 2025  Öllum grunnskólum landsins standa til boða heimsóknir listamanna úr ólíkum listgreinum, sem 90% skóla nýta. Laun listamanna og uppihald er kostað af verkefninu. Skólaárið 2023–2024 voru 15 verkefni á ferðinni um landið sem tæplega 11 þúsund nemenda nutu og 80 listamenn kom fram. List fyrir alla tekur þátt í margs konar samstarfi við menningarstofnanir á landsvísu svo og erlendu samstarfi til að jafna enn frekar aðgengi barna að menningu og listum, óháð búsetu og efnahag. 

Tengiliður    

Elfa Lilja Gísladóttir, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti - [email protected] 

Aðgerðin

Markmið: Að öllum árgöngum grunnskóla verði gert kleift að njóta listverkefna á vegum Listar fyrir alla.

Stutt lýsing: Listviðburðir verði valdir og þeim miðlað um land allt og þannig verði jafn¬aður aðgengismunur barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburð¬um óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla verði lögð á menningu fyrir börn og menn¬ingu með börnum. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur með fjölda skóla sem taka þátt í verkefninu og fjölda árganga skólabarna sem býðst þátttaka.

  • Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: List fyrir alla. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, menningarfulltrúar og grunnskólar.
  • Tímabil: 2022–2026. 
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menningarstefna.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 4.
  • Tillaga að fjármögnun: 25 millj. kr. úr byggðaáætlun.