B.05. Greining atvinnusóknar

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Desember 2025  Byggðastofnun hefur í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið unnið að framgangi aðgerðarinnar, sem felst í að skilgreina staðfang vinnustaðar og tíðni ferða milli heimilis og vinnustaðar. Verkefnið hefur reynst flóknara í framkvæmd en upphaflega var áætlað vegna þess að staðföng starfsstöðva starfsamanna eru ekki skráð hjá Hagstofu eða Skattinum. Fleiri stofnanir hafa því komið að þessu verkefni þar á meðal framangreindar stofnanir. Samtalið er enn í gangi milli aðila.

Febrúar 2025 Framkvæmd aðgerðarinnar gengur hægt, en hún þokast í rétta átt.

Janúar 2024  Byggðastofnun hefur í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið (FJR) unnið að framgangi aðgerðarinnar, sem felst í að skilgreina staðfang vinnustaðar og tíðni ferða milli heimilis og vinnustaðar. Það hefur tafið framgang verkefnisins að FJR fer ekki með málefni fyrirtækjaskrár og því hefur forsætisráðuneytið ásamt Hagstofu komið að málinu og er verið að finna tæknilega nálgun á framkvæmdina í samstarfi við þau.

Tengiliðir

Helga Jónsdóttir, fjármála- og efnahagsráðuneyti - [email protected]
Sigurður Árnason, Byggðastofnun - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að ferðaleiðir verði greindar vegna atvinnusóknar, þ.e. ferða milli heimilis og vinnustaðar.

Stutt lýsing: Skilgreint verði staðfang vinnustaðar og tíðni ferða milli heimilis og vinnustaðar þar sem slík greining er nauðsynleg forsenda þess að beita megi hagrænum hvötum við þróun atvinnusóknarsvæða. Upplýsinga verði m.a. leitað um það hvernig slíkum upplýsingum er safnað í Noregi.

  • Ábyrgð: Fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun
  • Dæmi um samstarfsaðila: Forsætisráðuneytið, innviðaráðuneytið, Skatturinn, Þjóðskrá Íslands og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
  • Tímabil: 2022-2023.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9 og 11, einkum undirmarkmið 9.1, 11.2 og 11.a.
  • Tillaga að fjármögnun: 2 millj. kr. af byggðaáætlun