A.08. Stjórnsýslustöðvar ríkis í héraði
| Aðgerðin er í vinnslu | |
|---|---|
Fréttir af aðgerðinni
27. mars 2026 Embætti sýslumanns laust til umsókna.
3. febrúar 2026 Frumvarp um sameinað embætti sýslumanns samþykkt á Alþingi.
Nóvember 2025 Frá árinu 2022 hefur staðið yfir með hléum stefnumótunarvinna í málefnum sýslumanna. Sama ár kynnti dómsmálaráðherra áform sín um sameiningu sýslumannsembættanna í eitt embætti, sem þó náðu ekki fram að ganga á því þingi. Veturinn 2022-2023 var unnið að lagabreytingum og flutningi verkefna tengdum innheimtu meðlaga frá höfuðborgarsvæðinu til Blönduóss. Fyrri hluta árs 2024 hófst á ný stefnumótunarvinna sem ekki tókst að ljúka. Gögnin vörpuðu þó ljósi á þörfina fyrir frekari skipulagsbreytingar á sýslumannsembættunum, með það að markmiði að styrkja starfsemina á landsbyggðinni og stuðla að hagkvæmari rekstri. Veturinn 2024-2025 var unnið að flutningi fleiri verkefna frá höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar, sem leiddi til þess að árið 2025 var fjölgað um tvö stöðugildi á landsbyggðinni, annað á Patreksfirði og hitt á Siglufirði auk þess sem að fjölgað var um eitt stöðugildi löglærðs fulltrúa á Eskifirði. Í byrjun árs 2025 var haldið áfram með fyrri áform um sameiningu sýslumannsembættanna, m.a. með það að markmiði að framfylgja þeim markmiðum sem stefnt er að í byggðaáætlun og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar. Frumvarpið náði ekki fram að ganga á 156. löggjafarþingi en var endurflutt án efnislegra breytinga á 157. löggjafarþingi 2025-2026. Í nóvember 2025 mælti dómsmálaráðherra að auki fyrir frumvarpi til laga um stafræna og rafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómsstólum, sbr. 231. mál, sem mun styðja við síðari flutning óstaðbundinna verkefna á grundvelli hlutaðeigandi laga til landsbyggðarinnar.
17. mars 2025 Frumvarp til laga um sameinað embætti sýslumanns samþykkt í ríkisstjórn.
13. desember 2024 Úrbætur á biðtíma hjá fjölskyldusviði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
28. nóvember 2024 Verkefni sýslumanna færð milli umdæma.
8. október 2024 Bætt aðgengi skipaðra lögráðamanna.
26. febrúar 2024 Stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna.
7. desember 2023 Verkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra.
22. nóvember 2023 Eftirfarandi verkþættir hafa verið í forgangi:
- Greining og samvinna við önnur ráðuneyti um ný verkefni fyrir sýslumenn, s.s. innheimtu meðlaga, umsýslu með nefndarstörfum, skráningar vegna útgáfu rafrænna skilríkja og mótun þjónustumiðstöðva í héraði. Helstu samstarfsaðilar eru IRN, FOR og FJR.
- Samráð við ríkisaðila á höfuðborgarsvæðinu sem heyra undir DMR um greiningu starfa í staðbundin eða óstaðbundin störf og að horft verði til aðgerða B.6., B.7. og A.8. við auglýsingar um laus störf. Starfsstöðvar sýslumanna á landsbyggðinni sérstaklega nefndar sem vænlegur kostur til að hýsa starfsfólk.
- Greining og undirbúningur fyrir gerð þjónustusamninga milli sýslumanna og annarra ríkisaðila og eftir atvikum einkaaðila um betri nýtingu innviða sýslumanna (húsnæðis, mannauðs o.fl.) með það að markmiði að bæta þjónustu við almenning og
- Gagnaöflun og annar undirbúningur fyrir greiningu á rekstri og stjórnsýsluframkvæmd embættanna. Að auki hefur DMR samið við utanaðkomandi sérfræðinga um aðstoð við verkstjórn vegna yfirflutnings nýrra verkefna og undirbúnings að stefnumótun um málefni sýslumanna.
3. apríl 2023 Frétt á vef DMR: Flutningur verkefna til sýslumanns.
Tengiliður
Guðmundur Bjarni Ragnarsson, dómsmálaráðuneytinu - [email protected]
Markmið: Að opinber þjónusta í héraði verði efld, atvinnutækifærum fjölgað og ríkisrekstur bættur.
Stutt lýsing: Starfsemi sýslumannsembætta um land allt og opinber þjónusta í héraði verði efld með betri nýtingu innviða, þ.m.t. stafrænnar tækni, húsnæðis og mannauðs. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur í fjölda starfa á sýsluskrifstofum og fjölda sérfræðinga þar.
- Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Dómsmálaráðuneytið og sýslumannaráð.
- Dæmi um samstarfsaðila: Sýslumenn, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélögin, verkefnastofa um stafrænt Ísland, önnur ráðuneyti og undirstofnanir.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Sýslumenn – Framtíðarsýn; umbætur á þjónustu og rekstri, skýrsla dómsmálaráðuneytisins (mars 2021).
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undir¬markmið 11.a og 11.b.
- Tillaga að fjármögnun: 50 m. kr. af byggðaáætlun.