Gervigreind - stefna og aðgerðir
Gervigreind opnar ný tækifæri til framfara, verðmætasköpunar og betri þjónustu. Innleiðing og notkun þarf að byggja á skýrri umgjörð og viðmiðum um öryggi, persónuvernd, gagnsæi og ábyrgð.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið fer með málefni gervigreindar, m.a. með stefnumótun, lagasetningu og samhæfingu aðgerða, í samstarfi við önnur ráðuneyti og stofnanir. Markmið er að styðja við ábyrga nýtingu tækninnar og styrkja innlent þekkingar- og nýsköpunarumhverfi.
Stefna og aðgerðir
Stefna Íslands um gervigreind hefur það að markmiði að stuðlað verði að því að móta sterkan og sameiginlegan grundvöll fyrir þróun og nýtingu gervigreindar á Íslandi, byggðan á góðri þekkingu á tækninni og þeim öryggisáskorunum sem henni fylgja. Áhersla er lögð á ábyrga hagnýtingu í þágu samfélagsins, í samræmi við mannréttindi og lýðræðisleg gildi.
Aðgerðaáætlun stjórnvalda um gervigreind setur fram megináherslur og aðgerðir til að greiða götu tækninnar á Íslandi og stuðla að markvissri og ábyrgri notkun hennar. Áætlunin byggir á fimm meginstoðum og samanstendur af 20 afmörkuðum aðgerðum.
Helstu áherslur á málefnasviðinu:
- Gervigreind í allra þágu: Stuðlað verði að ábyrgri notkun gervigreindar í samræmi við mannréttindi og siðferðileg viðmið. Áhersla verði á gagnsæi, öryggi og ábyrgð, og að lausnir nýtist í íslensku samhengi, þar á meðal fyrir íslenska tungu og menningu.
- Samkeppnishæft atvinnulíf: Stutt verði við fyrirtæki og stofnanir til að nýta gervigreind til verðmætasköpunar og aukinnar skilvirkni. Áhersla verði á aðgengi að innviðum, þekkingu og samstarfi sem eflir nýsköpun og samkeppnishæfni.
- Menntun í takt við tímann: Unnið verði að því að efla hæfni til að skilja og nýta gervigreind á ábyrgan hátt. Áhersla verði á fræðslu, gagnalæsi og viðmið fyrir notkun í skólastarfi, með mannréttindi, siðferði og stafræna borgaravitund að leiðarljósi.
- Nýjar leiðir í opinberri þjónustu: Gervigreind verði nýtt til að bæta þjónustu og auka skilvirkni í stjórnsýslu. Áhersla verði á gæði og samræmingu gagna, skýr viðmið og leiðbeiningar, og markvissa innleiðingu í lykilverkefnum.
- Heilbrigðiskerfi framtíðarinnar: Unnið verði að markvissri notkun gervigreindar til að styðja heilbrigðisþjónustu, bæta aðgengi og draga úr álagi. Áhersla verði á vandaða gagnastjórnun, skýran ramma um notkun og mótun gagnastefnu um heilbrigðisgögn.
Gagnlegir tenglar:
- Aðgerðaáætlun um gervigreind (2025-2027) (einnig á ensku)
Upplýsingatæknimál ríkisins