Ferðaviðvaranir
Ferðaviðvaranir utanríkisráðuneytisins
Utanríkisráðuneytið gefur afar sjaldan út ferðaviðvaranir en bendir þess í stað á viðvaranir utanríkisráðuneyta Norðurlandanna og Bretlands. Þau ríki eru í flestum tilfellum með starfsemi á viðkomandi stöðum og geta því gefið mun ítarlegri og betri viðvaranir.
Ferðaviðvaranir annarra utanríkisráðuneyta
Utanríkisráðuneyti margra ríkja gefa út sérstakar ferðaviðvaranir vegna ferðalaga til einstakra ríkja. Íslenskum ferðamönnum, sem hyggja á ferðalög til ríkja þar sem öryggi þeirra kann að vera ógnað, er bent á að fylgjast með ferðaviðvörunum sem eru gefnar út á neðangreindum vefsetrum:
Fyrirvari
Upplýsingarnar á þessari síðu eru eingöngu settar fram í leiðbeiningarskyni og án ábyrgðar af hálfu utanríkisráðuneytisins. Hafa ber hugfast að reglur geta breyst hratt í einstaka löndum og að staðaryfirvöld eiga ávallt lokaorðið um lagaframkvæmdina. Ferðafólk ber ætíð sjálft ábyrgð á ferðaundirbúningi og því að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á sérhverjum áfangastað.
Borgaraþjónusta - Aðstoð við íslendinga erlendis