Innrás Rússlands í Úkraínu - viðbrögð íslenskra stjórnvalda

Íslensk stjórnvöld fordæma ólögmæta innrás Rússlands og lýsa algjörum stuðningi við Úkraínu.

Ísland er samstíga bandalags- og samstarfsríkjum í aðgerðum til stuðnings Úkraínu og tekur fullan þátt í víðtækum þvingunaraðgerðum gagnvart Rússlandi. Stuðningur íslenskra stjórnvalda hefur meðal annars falist í framlögum til mannúðarstarfs, neyðarviðbrögðum og efnahagsaðstoð á vegum Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankans og annarra alþjóðastofnana til viðbótar við móttöku flóttafólks og varnartengdan stuðnings.

Sérstök stefna um stuðning við Úkraínu var samþykkt á Alþingi 29. apríl 2024 og miðar að því að styðja við sjálfstæði, fullveldi, friðhelgi landamæra, öryggi borgara, mannúðaraðstoð og uppbyggingarstarf í Úkraínu. Þann 31. maí 2024 undirritaði forsætisráðherra tvíhliða samning landanna um öryggissamstarf og langtímastuðning.

Heildarstuðningur Íslands við Úkraínu frá upphafi innrásarinnar í febrúar 2022 fram til loka ársins 2024 nemur um 10 milljörðum íslenskra króna.