Þvingunaraðgerðir

Útflutningseftirlit - Hryðjuverkamál - Peningaþvætti

Markmið þvingunaraðgerða er að viðhalda friði og öryggi í heiminum og/eða tryggja virðingu fyrir mannréttindum og mannfrelsi. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ákveður þvingunaraðgerðir með bindandi hætti og geta ríkjahópar einnig átt samstarf um slíkt.

Ísland framfylgir þvingunaraðgerðum gagnvart 30 ríkjum, auk hryðjuverkasamtaka og vegna efnavopna, alvarlegra mannréttindabrota og netárása. Þvingunaraðgerðirnar eru ákveðnar í samvinnu við alþjóðastofnanir, ríkjahópa eða samstarfsríki samkvæmt lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023 í samráði við utanríkismálanefnd Alþingis og er þeim ætlað að tryggja virka fylgni við alþjóðlegar þvingunaraðgerðir.

Lista yfir þau ríki og þverlæg málefni sem Íslands framfylgir þvingunaraðgerðum gegn er að finnahér að neðan.

Þvingunaraðgerðir eru verulega íþyngjandi fyrir þá aðila sem hafa verið skráðir á lista yfir þvingunaraðgerðir og því mikilvægt að þeir hafi úrræði til að fá slíkar ákvarðanir endurskoðaðar.

Hér að neðangefur að líta hvert aðilar sem hafa verið skráðir á lista yfir þvingunaraðgerðir geta leitað til að fá slíka skráningu endurskoðaða.

Þvingunaraðgerðir

Eftirfarandi er listi yfir þau ríki og aðila sem þvingunaraðgerðir sem Ísland framfylgir beinast gegn, hvað felst í viðkomandi þvingunaraðgerðum auk þess sem hlekkir eru á íslenskar innleiðingarreglugerðir.

Póstlisti vegna breytinga á lista yfir þvingunaraðgerðir

Hægt er að skrá sig á póstlista og fá tilkynningu um breytingar á lista yfir þvingunaraðgerðir (landalista). Skráning er á áskriftarsíðu stjórnarráðsins. Þar er flokkurinn Þvingunaraðgerðir - breytingar á landalistavalinn undir fyrirsögninni Annað.

Landalisti

Þverlæg málefni

Endurskoðun eða afskráning af lista yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Eitt af markmiðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna er að draga úr hættu á fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun og útbreiðslu gereyðingarvopna. Skilvirkasta úrræðið til að ná framangreindu markmiði er að tryggja að aðilar hafi ekki aðgang að fjármunum eða öðrum eignum með því að skrá viðkomandi aðila á lista yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir sem kveða á um frystingu fjármuna og efnahagslegs auð þessara aðila.

Aðilar sem hafa verið skráðir á lista yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir geta óskað eftir endurskoðun á þeirri skráningu. Vakin er athygli á því að skráning er ekki felld niður á meðan beiðni um endurskoðun eða afskráningu er til meðferðar.

Skráning af hálfu Sameinuðu þjóðanna

Aðilar sem hafa verið skráðir á grundvelli þvingunaraðgerða gegn ISIL (Da'esh) og Al-Qaida, geta beint beiðni um endurskoðun á skráningu til umboðsmanns málaflokksins hjá Sameinuðu þjóðunum.

Beiðni um endurskoðun á öðrum skráningum af hálfu Sameinuðu þjóðanna skal senda til miðlægs tengiliðar. Nánari upplýsingar um hann má finna á vef Sameinuðu þjóðanna:
http://www.un.org/

Aðilar með dvalarleyfi á Ísland og íslenskir ríkisborgarar geta óskað eftir því að Utanríkisráðuneytið komi beiðni þeirra um endurskoðun á framfæri með því að senda viðeigandi gögn og upplýsingar á:

Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Utanríkisráðuneytið
Reykjastræti 8
101 Reykjavík
Ísland
[email protected] – setja í efnislínu „alþjóðlegar þvingunaraðgerðir“

Sama á við um skráningu á lista sem Ísland hefur gefið út í samræmi við 23. gr. laga nr. 68/2023.

Skráning af hálfu Evrópusambandsins

Til að fá skráningu af hálfu Evrópusambandsins endurskoðaða skal haft beint samband við Evrópusambandið:

Council of the European Union
General Secretariat
DG C 1C
Rue de la Loi/Wetstraat 175
1048 Bruxelles/Brussel
BELGIQUE/BELGIË
Email: [email protected]

Frysting fjármuna eða efnahagslegs auðs hjá röngum aðila

Aðili sem verður fyrir því að fjármunir hans eða efnahagslegur auður er frystur vegna mistaka t.d. vegna þess að viðkomandi ber líkt eða sambærilegt nafn og aðili sem er skráður á þvingunarlista ætti að:

  • hafa samband við þann aðila sem frysti fjármunina eða efnahagslegan auð og fá upplýsingar um forsendur frystingarinnar, m.a. á grundvelli hvaða lista og nafns frystingin byggir á,
  • hafa samband við utanríkisráðuneytið [email protected] og merkja póstinn „alþjóðlegar þvingunaraðgerðir“

Spurt og svarað