Fríverslunarsamningur EES-EFTA ríkjanna og Bretlands
Lokið var við gerð nýs fríverslunarsamnings við Bretland í sumarbyrjun 2021 og samningurinn var svo undirritaður 8. júlí 2021. Er þar á ferðinni framsækinn og yfirgripsmikill fríverslunarsamningur sem nær til flestra sviða viðskipta á milli ríkjanna og þeirra reglna sem um þau gilda.
Samningurinn var samþykktur á Alþingi í mars 2022 og var beitt til bráðabirgða frá 1. september 2022 til 1. febrúar 2023 þegar hann tók endanlega gildi. Beiting til bráðabirgða hefur sömu réttaráhrif og gildistaka og geta íslensk fyrirtæki því nýtt sér ákvæði samningsins með sama hætti og um fulla gildistöku væri um að ræða.
Samninginn í heild á íslensku og ensku sem og þingsályktun um fullgildingu hans má finna inn á vef Alþingis.
Jafnframt má finna samninginn á vef Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA)
Hér að neðan má lesa um helstu þætti samningsins.
Almennt
Þann 4. júní 2021 luku Ísland, Liechtenstein og Noregur (þau þrjú aðildarríki EFTA sem eiga aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið) og Bretland efnislegum samningaviðræðum um heildstæðan fríverslunarsamning. Bretland er mikilvægur viðskiptaaðili fyrir öll þrjú EFTA-ríkin innan EES og þessi fríverslunarsamningur miðar að því að tryggja eins náin viðskiptatengsl og unnt er í kjölfar útgöngu Bretlands úr Evrópska efnahagssvæðinu.
Fríverslunarsamningurinn milli EFTA-ríkjanna innan EES og Bretlands er metnaðarfullur, framsækinn og heildstæður fríverslunarsamningur sem nær yfir öll vöruviðskipti, þjónustu og fjárfestingar, stafræn viðskipti, fjármagnsflutninga, opinber innkaup, hugverkaréttindi, samkeppni, styrki, lítil og meðalstór fyrirtæki, góðar reglusetningarvenjur og samstarf um reglusetningu, viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, viðskipti og sjálfbæra þróun, auk lagalegra og þverlægra málefna, þ.m.t. lausn deilumála.
Samningaviðræður um heildstæðan fríverslunarsamning milli aðilanna hófust í september 2020 og vegna þess hve tímaramminn var þröngur og hversu brýnar viðræðurnar voru fóru þær fram samtímis á öllum málefnasviðum, með reglulegum fundum aðalsamningsmanna. Í ljósi sóttvarnarráðstafanna og ferðatakmarkana vegna COVID-19 heimsfaraldurs hittust samningahópar Bretlands, Íslands, Liechtenstein og Noregs eingöngu á fjarfundum í gegnum allt samningsferlið.
Hér má kynna sér einstaka kafla samningsins nánar:
Migrated LiSA component: Unknown:5fbcdc49-c34e-409d-a5e4-2452afa0cc31
Needs reconstruction with the correct Veva component.
Source LiSA page:
30eee5f0-8f40-4204-a2c6-e65d02f008f9Original property values
{"Count":"0","Offset":"0","PageNumberQueryStringVariable":"","XsltTemplate":"a661e132-946f-11e6-9409-005056bc4d74","PredefinedTags":"","TagFilterType":"All","TagsUseQueryString":"false","TagsUseContext":"false","TagsQueryStringVariableName":"tags","TagsAppendQueryString":"false","FilterByOwner":"false","OrderByExpression":"","FilterExpression":"","IncludeSubItems":"false","DetailPageId":"","ListObjectListId":"155f1395-30fb-11ec-8141-005056bc8c60"}