Spurt og svarað um götulokanir

Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Reykjavík dagana 16. til 17. maí 2023. Ætla má að fundurinn hafi nokkur áhrif á daglegt líf íbúa á höfuðborgarsvæðinu þessa daga. Af öryggisástæðum verða götur í kringum Hörpu lokaðar fyrir umferð ökutækja á meðan á fundinum stendur en hægt verður að fara um svæðið gangandi og á hjóli. Þetta á hins vegar ekki við um svæðið næst Hörpu, sem verður lokað almenningi.

Einnig má gera ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið vegna aksturs sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli á þessum dögum. Áhrifin verða hvað mest síðdegis á þriðjudeginum og miðvikudeginum.

Hér til hliðar má sjá kort af svæðinu sem verður lokað fyrir umferð á meðan á fundinum stendur. Gagnvirkt yfirlitskort sem sýnir takmarkanir á aðgengi og áhrifasvæði banns við drónaflugi má nálgast hér.

Upplýsingar um öryggisgæslu vegna leiðtogafundarins má finna á vef lögreglunnar.

Íbúar sem eiga lögheimili og bílastæði innan svæðisins geta haft samband á [email protected].

Íbúum innan lokunarsvæðis er einnig bent á þjónustusímann 411 11 11, vefspjall og ábendingavef Reykjavíkurborgar.

Migrated LiSA component: Unknown:5fbcdc49-c34e-409d-a5e4-2452afa0cc31
Needs reconstruction with the correct Veva component. Source LiSA page: d0e92270-dd07-11ed-9bb9-005056bc4727
Original property values
{"ListObjectListId":"2f80be6d-e447-11ed-9bb9-005056bc4727","DetailPageId":"","IncludeSubItems":"false","PredefinedTags":"","TagFilterType":"All","TagsUseQueryString":"false","TagsUseContext":"false","TagsQueryStringVariableName":"tags","TagsAppendQueryString":"false","FilterExpression":"","OrderByExpression":"","FilterByOwner":"false","Count":"0","Offset":"0","PageNumberQueryStringVariable":"","XsltTemplate":"a661e132-946f-11e6-9409-005056bc4d74"}