Loftferðasamningar og samkomulög (MoU/MoC) Íslands

Loftferðasamningar kveða á um gagnkvæmrar heimildir til áætlunarflugs milli samningsríkja með eða án viðkomu í þriðju ríkjum. Margir samninganna fjalla einnig um leiguflug og aðra flugtengda þjónustu. Utanríkisráðuneytið hefur fyrirsvar við gerð þeirra í samráði við innviðaráðuneytið og Samgöngustofu. Samráð er haft við hagsmunaaðila í því ferli.

Ísland hefur gert samninga sem heimila flug til yfir 120 ríkja. Flestir þeirra eru tvíhliða en einnig eru nokkrir fjölhliða samningar, þar á meðal loftferðasamningurinn við Bandaríkin sem tekur til Íslands, Noregs og aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) og samningurinn um stofnun sameiginlegs evrópsks flugsvæðis (ECAA) sem nær Íslands, Noregs, aðildarríkja ESB, Albaníu, Bosníu og Hersegóvínu, Makedoníu, Svartfjallalands, Serbíu og Kósovó.

Öflugt net loftferðasamninga stuðlar að samkeppni og hagstæðari fargjöldum, ásamt því að tryggja íslenskum flugrekendum aðgang að alþjóðamörkuðum.

Loftferðasamningar

Fyrirvari

Birting loftferðasamninga hér á vefnum er í upplýsingaskyni og kemur ekki í stað lögformlegrar birtingar í C-deild Stjórnartíðinda (sbr. 4. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað nr. 15/2005).

Sé munur á texta hér á vefnum og í birtum samningi í Stjórnartíðindum, þá gildir textinn eins og hann birtist í Stjórnartíðindum.