10. apríl 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Hagir og líðan eldra fólks á Íslandi
Félagsvísindastofnun hefur að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins unnið greiningu á högum og líðan eldra fólks hér á landi. Niðurstöður greiningarinnar voru kynntar í dag. Spurt var um almennt heilbrigði, viðhorf til heilbrigðisþjónustu á Íslandi, aðstoð í daglega lífinu, heimaþjónustu, búsetuhagi, atvinnuhag, fjárhag, félagslega virkni, tölvuvirkni og fleira.