Nokkrar lykiltölur fjárlagafrumvarpsins

Langvinnur hallarekstur ríkissjóðs verður stöðvaður í fjárlagafrunvarpi ársins 2027. Tekjur og gjöld ná jafnvægi, grunnþjónusta er varin og skapaðar eru traustari forsendur fyrir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta.

Frumvarpið gerir ráð fyrir 4,7 ma.kr. afgangi árið 2027. Þessu er náð með hagræðingu og markvissri forgangsröðun fjármuna.

 

Ráðstafanir til að draga úr útgjaldavexti nema 44,2 ma.kr, þar af eru sértækar ráðstafanir 36,2 ma.kr., almennt aðhald 4,7 ma.kr. og 1% fækkun stöðugilda, um 200 stöðugildi, 3,2 ma.kr.

Aðhaldið er því ekki flatur niðurskurður heldur byggist það af markvissum aðgerðum. Samhliða aðhaldi er staðinn vörður um grunnþjónustu og framlög aukast að raunvirði til heilbrigðis- og félagsmála.

Tekjuráðstafanir nema 34,1 ma.kr af þeim eru 24,1 ma.kr. nýjar ráðstafanir sérstaklega til að ná hallaleysi og jafnvægi í ríkisfjármálum.

Aðgerðir á tekjuhlið eru markvissar þar sem byrðunum er dreift, má þar nefna hærri bankaskatt og gjaldtöku af ferðamönnum.

Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla samfellt frá 2019. Samanlagður halli áranna 2019-2026 nemur yfir 850 ma.kr. Markmið frumvarpsins er að styðja við lækkun verðbólgu og vaxta, verja grunnþjónustu og styrkja viðnámsþrótt ríkissjóðs.