Lagagreinar

1. gr. Fjárstreymi ríkissjóðs (A1-hluta)

Árið 2027 er gert ráð fyrir að fjárreiður ríkissjóðs (A1-hluta) verði eins og tilgreint er í þessari grein, sbr. sundurliðun 1 og 2.

Rekstrargrunnurm.kr.
Heildartekjur1.708.451,3
Skatttekjur1.333.211,7
Skattar á tekjur og hagnað591.499,7
Skattar á launagreiðslur og vinnuafl14.727,0
Eignarskattar16.622,0
Skattar á vöru og þjónustu674.955,4
Skattar á alþjóðaverslun og viðskipti8.671,2
Aðrir skattar26.736,4
Tryggingagjöld170.917,0
Fjárframlög9.217,8
Aðrar tekjur195.104,8
Eignatekjur132.969,4
þ.a. vaxtatekjur60.523,7
þ.a. arðgreiðslur49.622,0
Sala á vöru og þjónustu53.372,1
Ýmsar tekjur8.763,3
Heildargjöld1.703.767,8
Rekstrarútgjöld1.699.095,4
Laun374.704,0
Kaup á vöru og þjónustu264.707,4
Afskriftir102.991,4
Vaxtagjöld154.949,5
Framleiðslustyrkir65.562,9
Fjárframlög623.712,9
Félagslegar tilfærslur til heimila38.079,4
Tilfærsluútgjöld önnur en fjárframlög74.387,9
Rekstrarjöfnuður9.355,9
Hrein fjárfesting í efnislegum eignum4.672,5
Fjárfesting í efnislegum eignum107.663,9
Afskriftir (-)-102.991,4
Heildarjöfnuður4.683,5
Frumjöfnuður99.109,2
Peningalegar eignir, hreyfingar101.516,7
Sjóður og bankareikningar, nettó78.428,5
Lánveitingar16.943,0
Hlutafé og stofnfjárframlög-5.294,0
Viðskiptakröfur11.439,2
Skuldir, hreyfingar96.833,3
Lántökur145.953,0
Lífeyrisskuldbindingar-10.989,0
Viðskiptaskuldir-38.130,7

2. gr. Sjóðstreymi ríkissjóðs (A1-hluta)

Árið 2027 er áætlað að sjóðstreymi ríkissjóðs (A1-hluta) verði eins og tilgreint er í þessari grein.

Rekstrarhreyfingarm.kr.
Innheimta1.604.978,7
Skatttekjur1.311.635,1
Tryggingagjöld167.930,0
Fjárframlög9.217,8
Fjármunatekjur32.253,2
Aðrar tekjur83.942,6
Greiðslur1.620.254,1
Rekstrargjöld án fjármagnskostnaðar786.270,2
Rekstrartilfærslur685.778,8
Fjármagnstilfærslur40.402,1
Fjármagnskostnaður107.803,0
Handbært fé frá rekstri-15.275,4
Fjárfestingarhreyfingar 
Fjárfesting-79.137,1
Sala eigna1.800,0
Veitt löng lán-33.882,0
Innheimtar afborganir af veittum lánum16.939,0
Móttekinn arður49.622,0
Framlag til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins-11.085,0
Eiginfjárframlög og hlutabréfakaup3.494,0
Fjárfestingarhreyfingar samtals-52.249,1
Hreinn lánsfjárjöfnuður-67.524,5
Fjármögnunarhreyfingar  
Tekin langtímalán302.600,0
Afborganir af teknum langtímalánum-156.647,0
Fjármögnunarhreyfingar samtals145.953,0
Breyting á handbæru fé78.428,5

3. gr. Fjárheimildir ríkissjóðs (A1-hluta) eftir málefnasviðum

Árið 2027 er gert ráð fyrir að fjárheimildir fyrir heildargjöldum, rekstrartekjur og framlag úr ríkissjóði fyrir málefnasvið ríkissjóðs (A1-hluta) verði eins og tilgreint er í þessari grein.

Rekstrargrunnur, m.kr.Rekstrar-framlögRekstrar-tilfærslurFjármagns-tilfærslurFjárfestingar-framlögHeildar-fjárheimildRekstrar-
tekjur
Framlag úr ríkissjóði
01 Alþingi og eftirlitsstofnanir þess6.945,4145,4 136,97.227,7-156,87.070,9
02 Dómstólar4.728,2  77,44.805,6-1,84.803,8
03 Æðsta stjórnsýsla2.865,534,9 1.419,54.319,9 4.319,9
04 Utanríkismál18.477,67.737,0 405,626.620,2-591,126.029,1
05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla26.805,01.018,9 3.765,031.588,9-6.341,225.247,7
06 Hagskýrslugerð og grunnskrár3.369,3  77,53.446,8-721,42.725,4
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar1.464,75.872,723.261,170,130.668,6-1.057,829.610,8
08 Sveitarfélög og byggðamál899,440.183,8 14,941.098,1 41.098,1
09 Almanna- og réttaröryggi46.918,3606,353,54.917,452.495,5-2.894,849.600,7
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála14.417,78.691,2 753,923.862,8-347,723.515,1
11 Samgöngu- og fjarskiptamál22.174,610.387,81.528,640.103,374.194,3-3.138,771.055,6
12 Landbúnaður7.342,820.608,0 113,028.063,8-1.418,926.644,9
13 Sjávarútvegur og fiskeldi6.316,5881,7 667,57.865,7-2.097,95.767,8
14 Ferðaþjónusta1.064,31.166,7429,72,42.663,1-95,92.567,2
15 Orkumál263,16.528,01.993,9 8.785,0 8.785,0
16 Markaðseftirlit og neytendamál1.050,23.815,9 7,24.873,3-27,44.845,9
17 Umhverfismál24.975,98.922,64.855,21.460,740.214,4-5.985,332.789,1
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál14.665,27.906,9545,52.795,325.912,9-2.773,423.139,5
19 Fjölmiðlun7.199,1937,2 1,08.137,3 8.137,3
20 Framhaldsskólastig52.181,93.405,8 1.325,356.913,0-2.250,454.662,6
21 Háskólastig69.899,05.705,8 988,076.592,8-19.272,757.320,1
22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála5.036,32.142,4 14,47.193,1-449,26.743,9
23 Sjúkrahúsþjónusta173.189,05.246,2 17.642,9196.078,1-12.910,1183.168,0
24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa59.810,955.255,9 179,6115.246,4-1.991,3113.255,1
25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta95.223,2 3.819,613,199.055,9-5.634,793.421,2
26 Lyf og lækningavörur18.129,329.483,8  47.613,1 47.613,1
27 Örorka og málefni fatlaðs fólks84,2153.468,8 0,3153.553,3-11,3153.542,0
28 Málefni aldraðra2,1140.062,5  140.064,6-8,3140.056,3
29 Fjölskyldumál10.342,282.096,3 1.509,393.947,8-256,993.145,9
30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi5.413,151.392,6 151,656.957,3-1.233,855.723,5
31 Húsnæðis- og skipulagsmál4.438,011.511,05.900,0266,422.115,4-1.721,320.394,1
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála13.691,4890,6 60,714.642,7-1.400,513.242,2
33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindi215.266,5  110,0215.376,5 152.652,5
34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir23.425,62.580,4 176,926.182,9 18.624,8
35 Alþjóðleg þróunarsamvinna3.544,213.160,8  16.705,0 16.705,0
Samtals961.619,7681.847,942.387,179.227,11.765.081,8-74.790,61.618.024,1
Aðlaganir gagnvart GFS-staðli    -61.314,015.122,5 
þar af aðlögun vegna rekstrartekna    -15.122,515.122,5 
þar af vegna tapaðra krafna    -90,0  
þar af vegna endurgreiðslu VSK til opinberra aðila    21.699,0  
þar af vegna sölu fastafjármuna    -836,0  
þar af vegna framsetningar lífeyrisskuldbindinga    -59.406,3  
þar af v/ afskrifta skattkrafna    -7.558,1  
Samtals skv. GFS staðli    1.703.767,8-59.668,11.618.024,1

4. gr. Fjárheimildir ríkissjóðs (A1-hluta) eftir málefnasviðum og málaflokkum

Árið 2027 er gert ráð fyrir að framlög úr ríkissjóði (A1-hluta) og fjárheimildir fyrir heildargjöldum, án rekstrartekna, sundurliðaðar eftir ráðuneytum, málefnasviðum og málaflokkum verði eins og tilgreint er í þessari grein.

Rekstrargrunnur, m.kr.Rekstrar-framlögRekstrar-tilfærslurFjármagns-tilfærslurFjárfestingar-framlögHeildar-fjárheimildFramlag úr ríkissjóði
00 Æðsta stjórn ríkisins8.816,7145,4 149,09.111,18.954,3
01 Alþingi og eftirlitsstofnanir þess6.945,4145,4 136,97.227,77.070,9
01.10 Alþingi5.317,6119,9 122,45.559,95.519,5
01.20 Eftirlitsstofnanir Alþingis1.627,825,5 14,51.667,81.551,4
02 Dómstólar311,0   311,0311,0
02.10 Hæstiréttur311,0   311,0311,0
03 Æðsta stjórnsýsla.1.560,3  12,11.572,41.572,4
03.10 Embætti forseta Íslands.421,5  12,1433,6433,6
03.20 Ríkisstjórn1.138,8   1.138,81.138,8
01 Forsætisráðuneyti4.699,334,9 1.482,66.216,85.253,7
03 Æðsta stjórnsýsla.1.305,234,9 1.407,42.747,52.747,5
03.30 Forsætisráðuneyti.1.305,234,9 1.407,42.747,52.747,5
06 Hagskýrslugerð og grunnskrár.2.084,7  26,52.111,21.860,9
06.10 Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál2.084,7  26,52.111,21.860,9
08 Sveitarfélög og byggðamál3,0  14,917,917,9
08.20 Byggðamál3,0  14,917,917,9
09 Almanna- og réttaröryggi405,5  2,6408,1395,9
09.30 Ákæruvald og réttarvarsla405,5  2,6408,1395,9
17 Umhverfismál804,4  30,8835,2134,6
17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla.804,4  30,8835,2134,6
29 Fjölskyldumál96,5  0,496,996,9
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn.96,5  0,496,996,9
02 Mennta- og barnamálaráðuneyti.62.673,012.293,0 3.958,478.924,476.151,3
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál53,91.941,6 2.422,04.417,54.417,5
18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál53,91.941,6 2.422,04.417,54.417,5
20 Framhaldsskólastig.52.181,93.405,8 1.325,356.913,054.662,6
20.10 Framhaldsskólar52.172,41.500,2 1.325,354.997,952.747,5
20.20 Tónlistarfræðsla 830,1  830,1830,1
20.30 Vinnustaðanám og styrkir9,5383,1  392,6392,6
20.40 Jöfnun námskostnaðar 692,4  692,4692,4
22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála4.651,02.137,9 12,16.801,06.419,1
22.10 Leikskóla- og grunnskólastig1.313,6358,4  1.672,01.672,0
22.20 Framhaldsfræðsla og menntun óflokkuð á skólastig561,11.760,7  2.321,82.321,8
22.30 Stjórnsýsla mennta- og barnamála2.776,318,8 12,12.807,22.425,3
29 Fjölskyldumál5.786,24.807,7 199,010.792,910.652,1
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn.5.786,24.735,1 199,010.720,310.579,5
29.70 Málefni innflytjenda og flóttamanna. 72,6  72,672,6
03 Utanríkisráðuneyti22.021,820.897,8 405,643.325,242.734,1
04 Utanríkismál18.477,67.737,0 405,626.620,226.029,1
04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála.7.728,7163,4 193,88.085,97.494,8
04.20 Utanríkisviðskipti.1.284,021,3  1.305,31.305,3
04.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál9.464,93.607,0 211,813.283,713.283,7
04.50 Samningsbundin framlög vegna fjölþjóðasamstarfs 3.945,3  3.945,33.945,3
35 Alþjóðleg þróunarsamvinna.3.544,213.160,8  16.705,016.705,0
35.10 Þróunarsamvinna.3.544,213.160,8  16.705,016.705,0
04 Atvinnuvegaráðuneyti16.146,122.811,2889,6790,740.637,636.967,3
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar132,2 459,90,6592,7562,5
07.10 Vísindi og samkeppnissjóðir í rannsóknum34,0 459,9 493,9493,9
07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar98,2  0,698,868,6
12 Landbúnaður7.342,820.608,0 113,028.063,826.644,9
12.10 Stjórnun landbúnaðarmála5.137,220.467,7 102,025.706,924.321,6
12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum736,0140,3  876,3876,3
12.60 Stjórnsýsla atvinnuvegaráðuneytis.1.469,6  11,01.480,61.447,0
13 Sjávarútvegur og fiskeldi6.316,5881,7 667,57.865,75.767,8
13.10 Stjórnun sjávarútvegs og fiskeldis.186,0732,9  918,9883,9
13.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi6.130,5148,8 667,56.946,84.883,9
14 Ferðaþjónusta1.064,31.166,7429,72,42.663,12.567,2
14.10 Ferðaþjónusta.1.064,31.166,7429,72,42.663,12.567,2
16 Markaðseftirlit og neytendamál1.050,2154,8 7,21.212,21.184,8
16.10 Markaðseftirlit og neytendamál946,420,3 7,2973,9962,7
16.20 Stjórnsýsla atvinnumála og nýsköpunar103,8134,5  238,3222,1
21 Háskólastig240,1   240,1240,1
21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi.240,1   240,1240,1
06 Dómsmálaráðuneyti63.653,29.896,253,55.798,079.400,975.140,6
02 Dómstólar4.417,2  77,44.494,64.492,8
02.10 Hæstiréttur317,3  2,6319,9319,9
02.20 Héraðsdómstólar2.598,7  20,72.619,42.617,6
02.30 Landsréttur1.065,9  4,11.070,01.070,0
02.40 Dómstólasýslan.435,3  50,0485,3485,3
06 Hagskýrslugerð og grunnskrár1.284,0  51,01.335,0863,9
06.10 Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál1.284,0  51,01.335,0863,9
09 Almanna- og réttaröryggi46.512,8606,353,54.914,852.087,449.204,8
09.10 Löggæsla29.076,7550,2 821,230.448,129.123,0
09.20 Landhelgi8.703,1 53,5131,08.887,68.169,3
09.30 Ákæruvald og réttarvarsla2.248,5  10,52.259,02.259,0
09.40 Réttaraðstoð og bætur2.712,852,4  2.765,22.123,3
09.50 Fullnustumál3.771,73,7 3.952,17.727,57.530,2
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála10.614,38.691,2 753,920.059,419.711,7
10.10 Persónuvernd386,9  3,8390,7385,6
10.20 Trúmál1.736,18.601,5  10.337,610.337,6
10.30 Sýslumenn.4.169,5  63,04.232,54.093,9
10.40 Stjórnsýsla dómsmálaráðuneytis.1.938,589,7 626,02.654,22.502,0
10.50 Útlendingamál2.383,3  61,12.444,42.392,6
29 Fjölskyldumál545,0475,6  1.020,6475,6
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn.545,0475,6  1.020,6475,6
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála279,9123,1 0,9403,9391,8
32.20 Jafnréttismál279,9123,1 0,9403,9391,8
07 Félags- og húsnæðismálaráðuneyti24.246,1400.201,39.719,61.745,5435.912,5432.829,9
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála3.803,4   3.803,43.803,4
10.50 Útlendingamál3.803,4   3.803,43.803,4
25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta2.440,2 3.819,6 6.259,86.259,8
25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými2.440,2 3.819,6 6.259,86.259,8
27 Örorka og málefni fatlaðs fólks84,2148.568,8 0,3148.653,3148.642,0
27.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, örorkulífeyrir. 128.666,4  128.666,4128.666,4
27.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, örorka 19.449,3  19.449,319.449,3
27.30 Málefni fatlaðs fólks84,0  0,384,384,3
27.40 Aðrar örorkugreiðslur (Önnur velferðarmál, lífeyristrygg.)0,2453,1  453,3442,0
28 Málefni aldraðra2,1140.062,5  140.064,6140.056,3
28.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, lífeyrir aldraðra 128.440,8  128.440,8128.440,8
28.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, öldrun0,110.862,8  10.862,910.855,6
28.30 Þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur, óta2,0758,9  760,9759,9
29 Fjölskyldumál3.820,048.430,2 1.309,953.560,153.556,0
29.20 Fæðingarorlof 35.651,4  35.651,435.651,4
29.30 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, fjölskyldur. 731,0  731,0731,0
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn.2.479,99.784,3 1.309,913.574,113.570,0
29.50 Bætur til eftirlifenda 666,5  666,5666,5
29.70 Málefni innflytjenda og flóttamanna.1.340,11.597,0  2.937,12.937,1
30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi5.413,151.392,6 151,656.957,355.723,5
30.10 Vinnumál og atvinnuleysi3.497,451.337,5 127,054.961,954.597,2
30.20 Vinnumarkaður.1.915,755,1 24,61.995,41.126,3
31 Húsnæðis- og skipulagsmál4.438,011.511,05.900,0266,422.115,420.394,1
31.10 Húsnæðismál4.408,011.206,55.900,0266,421.780,920.059,6
31.20 Skipulagsmál30,0304,5  334,5334,5
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála4.245,1236,2 17,34.498,64.394,8
32.40 Stjórnsýsla félagsmála4.245,1236,2 17,34.498,64.394,8
08 Heilbrigðisráðuneyti353.173,193.722,1 17.878,1464.773,3442.840,6
23 Sjúkrahúsþjónusta173.189,05.246,2 17.642,9196.078,1183.168,0
23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta152.359,90,4 17.273,6169.633,9159.187,4
23.20 Almenn sjúkrahúsþjónusta.20.829,1  369,321.198,418.734,8
23.30 Erlend sjúkrahúsþjónusta 5.245,8  5.245,85.245,8
24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa59.810,955.255,9 179,6115.246,4113.255,1
24.10 Heilsugæsla.56.393,8  179,656.573,454.582,1
24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun.12,041.181,5  41.193,541.193,5
24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun.4,411.981,1  11.985,511.985,5
24.40 Sjúkraflutningar3.400,72.093,3  5.494,05.494,0
25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta92.783,0  13,192.796,187.161,4
25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými82.614,4  13,182.627,576.992,8
25.20 Endurhæfingarþjónusta10.168,6   10.168,610.168,6
26 Lyf og lækningavörur18.129,329.483,8  47.613,147.613,1
26.10 Lyf.18.129,320.244,2  38.373,538.373,5
26.30 Hjálpartæki 9.239,6  9.239,69.239,6
29 Fjölskyldumál94,53.204,9  3.299,43.187,4
29.60 Bætur vegna veikinda og slysa.94,53.204,9  3.299,43.187,4
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála9.166,4531,3 42,59.740,28.455,6
32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit3.030,9247,0 31,53.309,42.089,5
32.30 Stjórnsýsla heilbrigðismála.6.135,5284,3 11,06.430,86.366,1
09 Fjármála- og efnahagsráðuneyti129.412,733.160,4 4.051,9166.625,0118.283,7
05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla26.805,01.018,9 3.765,031.588,925.247,7
05.10 Skattar og innheimta11.362,3  98,611.460,910.775,6
05.20 Eignaumsýsla ríkisins1.754,9  1.061,92.816,81.051,3
05.30 Fjármálaumsýsla ríkisins.6.950,4  126,77.077,13.208,2
05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála6.737,41.018,9 2.477,810.234,110.212,6
06 Hagskýrslugerð og grunnskrár.0,6   0,60,6
06.10 Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál0,6   0,60,6
16 Markaðseftirlit og neytendamál 3.661,1  3.661,13.661,1
16.10 Markaðseftirlit og neytendamál 3.661,1  3.661,13.661,1
27 Örorka og málefni fatlaðs fólks 4.900,0  4.900,04.900,0
27.50 Jöfnun á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða 4.900,0  4.900,04.900,0
29 Fjölskyldumál 21.000,0  21.000,021.000,0
29.10 Barnabætur 21.000,0  21.000,021.000,0
33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindi79.181,5  110,079.291,544.849,5
33.20 Ríkisábyrgðir   110,0110,020,0
33.30 Lífeyrisskuldbindingar79.181,5   79.181,544.829,5
34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir.23.425,62.580,4 176,926.182,918.624,8
34.10 Almennur varasjóður.15.720,92.412,9  18.133,818.133,8
34.20 Sértækar fjárráðstafanir146,6167,5 176,9491,0491,0
34.30 Afskriftir skattkrafna7.558,1   7.558,1 
10 Innviðaráðuneyti23.071,054.749,51.528,640.103,3119.452,4116.313,7
08 Sveitarfélög og byggðamál.896,440.183,8  41.080,241.080,2
08.10 Framlög til sveitarfélaga780,738.401,4  39.182,139.182,1
08.20 Byggðamál115,71.782,4  1.898,11.898,1
11 Samgöngu- og fjarskiptamál.22.174,610.387,81.528,640.103,374.194,371.055,6
11.10 Samgöngur19.811,09.684,11.528,640.085,871.109,568.104,1
11.20 Fjarskipti1.143,0602,1 10,61.755,71.725,8
11.30 Stjórnsýsla innviðaráðuneytis1.220,6101,6 6,91.329,11.225,7
29 Fjölskyldumál 4.177,9  4.177,94.177,9
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn. 4.177,9  4.177,94.177,9
14 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti24.845,915.450,67.257,71.437,048.991,242.207,8
15 Orkumál263,16.528,01.993,9 8.785,08.785,0
15.10 Stjórnun og þróun orkumála.263,16.528,01.993,9 8.785,08.785,0
17 Umhverfismál24.171,58.922,64.855,21.429,939.379,232.654,5
17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla.6.447,4873,9 1.203,38.524,66.373,1
17.20 Rannsóknir og vöktun á náttúru Íslands6.404,2262,0 188,46.854,64.382,9
17.30 Meðhöndlun úrgangs.5.737,96.299,4 1,812.039,111.881,1
17.40 Varnir vegna náttúruvá.386,1 4.476,4 4.862,54.862,5
17.50 Stjórnsýsla umhverfismála5.195,91.487,3378,836,47.098,45.154,9
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál411,3 408,67,1827,0768,3
18.20 Menningarstofnanir.411,3  1,1412,4412,1
18.30 Menningarsjóðir  408,66,0414,6356,2
17 Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti92.775,818.485,522.938,11.427,0135.626,4112.544,1
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar1.332,55.872,722.801,269,530.075,929.048,3
07.10 Vísindi og samkeppnissjóðir í rannsóknum216,148,39.801,258,510.124,19.965,7
07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar1.116,45.824,413.000,011,019.951,819.082,6
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál14.200,05.965,3136,9366,220.668,417.953,7
18.10 Safnamál6.141,6371,4127,9179,26.820,15.658,8
18.20 Menningarstofnanir.7.612,1776,29,0187,08.584,37.064,9
18.30 Menningarsjóðir446,34.817,7  5.264,05.230,0
19 Fjölmiðlun7.199,1937,2 1,08.137,38.137,3
19.10 Fjölmiðlun7.199,1937,2 1,08.137,38.137,3
21 Háskólastig69.658,95.705,8 988,076.352,757.080,0
21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi.67.308,11.523,6 975,169.806,851.574,9
21.30 Stuðningur við námsmenn2,84.167,5  4.170,34.170,3
21.40 Stjórnsýsla menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis2.348,014,7 12,92.375,61.334,8
22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála385,34,5 2,3392,1324,8
22.20 Framhaldsfræðsla og menntun óflokkuð á skólastig385,34,5 2,3392,1324,8
19 Vaxtagjöld ríkissjóðs136.085,0   136.085,0107.803,0
33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindi136.085,0   136.085,0107.803,0
33.10 Fjármagnskostnaður136.085,0   136.085,0107.803,0
Samtals.961.619,7681.847,942.387,179.227,11.765.081,81.618.024,1
Aðlaganir gagnvart GFS-staðli    -61.314,0 
þar af aðlögun vegna rekstrartekna    -15.122,5 
þar af vegna tapaðra krafna    -90,0 
þar af vegna endurgreiðslu VSK til opinberra aðila    21.699,0 
þar af vegna sölu fastafjármuna    -836,0 
þar af vegna framsetningar lífeyrisskuldbindinga    -59.406,3 
þar af v/ afskrifta skattkrafna    -7.558,1 
Samtals skv. GFS staðli    1.703.767,81.618.024,1

Ýmis ákvæði

5. gr. Lántökur, endurlán og ríkisábyrgðir

Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilað að taka lán, endurlána, veita ríkisábyrgðir og fleira eftir því sem kveðið er á um í ákvæðum þessarar greinar:

  1. Að taka lán allt að 250 ma.kr., eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, og ráð­stafa því í samræmi við ákvæði þessara laga.
  2. Að taka lán allt að 84 ma.kr. til fjármögnunar á eigin fé Seðlabanka Íslands verði eftir því kallað á grundvelli heimildar í 3. mgr. 40. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Eftirstöðvar innkallanlegs eigin fjár færast upp við hver áramót með hækkun vísitölu neysluverðs.
  3. Að taka lán allt að 140 ma.kr., eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, til viðbótar lántöku samkvæmt lið 1 hér að framan, t.a.m. í því skyni að efla gjaldeyrisforða eða endurfjármagna eldri lán, verði það talið hagkvæmt. Heimilt er að endurlána Seðla­banka Íslands lán sem tekin eru til að styrkja gjaldeyrisforðann.
  4. Að endurlána allt að 3 ma.kr. til Menntasjóðs námsmanna til að fjármagna útlán nýs lánakerfis námsmanna. Öll útlán í nýju lánakerfi verði fjármögnuð með endurláni úr ríkissjóði og beinum framlögum ríkissjóðs vegna styrkja.
  5. Að endurlána allt að 10 ma.kr. til Húsnæðissjóðs vegna útlána sjóðsins að sömu fjárhæð. Þar af eru hlutdeildarlán 5,5 ma.kr.
  6. Að endurlána eignasafni Ríkiseigna allt að 1,5 ma.kr. vegna meiri háttar endurbóta og breytinga á húsnæði sem safnið hefur til umráða.
  7. Að endurlána allt að 5 ma.kr. til Byggðastofnunar eða veita Byggðastofnun heimild til lántöku á árinu 2027, allt að 5 ma.kr., sbr. 5. tölul. 1. mgr. 16. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál.
  8. Að endurlána allt að 8,5 ma.kr. til Betri samgangna ohf., sbr. 8 gr. laga nr. 81/2020, um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuð­borgarsvæðinu.
  9. Að endurlána allt að 3 ma.kr. til Fasteigna Háskóla Íslands ehf. vegna framkvæmda á fasteignum sem áformað er að nýta undir háskólastarfsemi.
  10. Að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að endurlána allt að 3 ma.kr. til Fasteigna Háskóla Íslands ehf. til að standa undir umsýslu, viðhaldi og framkvæmdum á fasteignum sem nýttar eru undir starfsemi Háskóla Íslands, sbr. ákvæði laga nr. 13/1973 um Happdrætti Háskóla Íslands.
  11. Að endurlána allt að 435 m.kr. til Fasteignafélagsins Þórkötlu hf. vegna fjármögnunar á rekstri félagsins í samræmi við ákvæði um viðbótarlán í rammasamkomulagi við lánveitendur í Grindavík frá árinu 2024.
  12. Ýmis ákvæði.
    12.1.  Erlendar fjárhæðir skulu miðast við kaupgengi íslensku krónunnar samkvæmt gengis­skráningu Seðlabanka Íslands á staðfestingardegi fjárlaga.
    12.2.  Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að stækka áður útgefna flokka ríkisbréfa og ríkisvíxla sem ekki eru komnir á gjalddaga.
    12.3.  Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að gera vaxta­skipta­samninga í því skyni að stýra vaxtaáhættu ríkissjóðs fyrir allt að 50 ma.kr.
    12.4.  Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að gera gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Íslands til þess að auka skilvirkni lausafjárstýringar.
    12.5.  Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, getur heimilað þeim aðilum sem njóta ríkisábyrgðar á lántökum sínum:
    a. að taka lán í því skyni að endurgreiða fyrir gjalddaga eftirstöðvar eldri lána þegar hagstæðari kjör eru talin bjóðast;
  1. að stofna til skulda- og vaxtaskipta og nýta aðra möguleika sem bjóðast á markaði til þess að tryggja viðkomandi aðila gegn verulegum vaxta- eða gengis­breytingum;
    c. að taka ný lán til endurgreiðslu skammtímalána sem tekin eru á grundvelli heimilda í lið 2, að hluta eða öllu leyti, án þess að lánssamningur um þau falli úr gildi enda sé ekki dregið á slíka lánssamninga að nýju nema laga­heimild liggi fyrir.
    12.6.  Hyggist aðilar, sem njóta ríkisábyrgðar á lántökum sínum, nýta sér heimildir skv. lið 12.5 skulu þeir gæta ákvæða 2. mgr. 5. gr. laga nr. 43/1990, um lánasýslu ríkisins.

6. gr. Heimildir ráðherra

Fjármála- og efnahagsráðherra er heimilt:

Eftirgjöf gjalda.

1.1 Að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt af efniskostnaði og sérfræðiþjónustu sem keypt er fyrir styrktarfé vegna rannsóknar Hjartaverndar á heilbrigði öldrunar.

1.2 Að heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts af sérhæfðum íþróttabúnaði fyrir fatlaða íþróttamenn enda liggur fyrir staðfesting um að Sjúkratryggingar Íslands veiti ekki styrk vegna kaupa á íþróttabúnaðinum.

 

Sala fasteigna.

2.1 Að selja eignar­hlut ríkisins ­í húsnæði á vegum grunn­-, framhalds- og sérskóla ásamt há­skólum í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.

2.2  Að selja eignarhlut ríkisins í húsnæði á vegum heilbrigðisstofnana, sjúkrahúsa eða í heil­brigðistengdri starfsemi í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.

2.3 Að selja húsnæði dómstóla, lögreglu- og sýslumannsembætta og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.

2.4 Að selja óhentugar eða óhagkvæmar húseignir utanríkisþjónustunnar erlendis og kaupa eða leigja hentugra húsnæði.

2.5 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti fasteignum ríkisins við Guðrúnartún 6, Borgartún 5 og 7 í Reykjavík.

2.6 Að selja Laugaveg 162–166 í Reykjavík og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.

2.7 Að selja Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík og kaupa eða leigja hentugra húsnæði fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra.

2.8 Að selja Tollhúsið við Tryggvagötu 19 í Reykjavík.

2.9 Að selja Skógarhlíð 6 í Reykjavík.

2.10 Að selja Ármúla 1a í Reykjavík og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.

2.11 Að selja fasteignir í eigu ríkisins við Stakkahlíð og Laugarnesveg 91 í Reykjavík.

2.12 Að selja Austurstræti 19 í Reykjavík og Vesturvör 2 í Kópavogi og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Landsrétt.

2.13 Að selja Kópavogsbraut 1c í Kópavogi eða færa eignina til Vigdísarholts ehf. í formi hlutafjár.

2.14 Að selja eða leigja fasteignir í eigu ríkisins við Kópavogsbraut 5a–c í Kópavogi.

2.15 Að selja eða leigja fasteignir í eigu ríkisins á Vífilsstöðum í Garðabæ sem nýtast ekki undir starfsemi á vegum ríkisins.

2.16 Að selja eignarhlut ríkisins í Hafnarstræti 99–101 á Akureyri og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.

2.17 Að selja íbúðarhús á leigulóð á jörðinni Langekru í Rangárþingi ytra.

2.18 Að selja eyðibýli og húsarústir sem henta vel til endurbyggingar á leigulóð.

2.19 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti flugstöð á Þingeyri og flugstöð á Aðaldals­flugvelli.

2.20 Að selja eignarhlut ríkisins í Stillholti 16–18 á Akranesi og kaupa eða leigja annað hent­ugra húsnæði.

2.21 Að selja eða leigja húsnæði í eigu ríkisins við Árleyni í Reykjavík.

2.22 Að heimila ÁTVR að selja Austurstræti 10a í Reykjavík og Hólabraut 16 á Akureyri.

2.23 Að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að selja eignarhlut í Bíldshöfða 16 í Reykjavík og kaupa eða leigja hentugra húsnæði.

2.24 Að heimila Fasteignum Háskóla Íslands ehf. að selja Hofsvallagötu 53, Aragötu 9 og 14 í Reykjavík.

2.25 Að selja Rauðarárstíg 25 og Skuggasund 1–3 í Reykjavík.

2.26 Að selja Sundstræti 28 og Hafnarstræti 1 á Ísafirði.

2.27 Að selja eða leigja Grensásveg 9, Dugguvog 52 og Skipholt 37 í Reykjavík.

2.28 Að selja húsnæði á vegum Lands og skógar og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.

2.29 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti eignarhlut í flugafgreiðslu við Nauthólsveg og ratsjárhúsi á Reykjavíkurflugvelli.

2.30 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti fasteigninni Fífilbrekku í Ölfusi og Aðalgötu 23 á Sauðárkróki.

2.31 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti fasteignum ríkisins á Hólum í Hjaltadal í tengslum við endurskipulagningu á húsnæðismálum Háskólans á Hólum og leigja eða kaupa annað hentugra húsnæði.

2.32 Að selja Suðurgötu 39, Þingholtsstræti 29 og Laufásveg 14 í Reykjavík.

2.33 Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Þórðarstöðum í Þingeyjarsveit.

2.34 Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Vöglum í Þingeyjarsveit.

2.35 Að selja íbúðarhús á leigulóð að Kornbrekku í Rangárþingi ytra.

2.36 Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Hafursá í Múlaþingi.

2.37 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti Vesturgötu 62 á Akranesi.

2.38 Að selja íbúðarhús við Launrétt 6 í Laugarási.

 

Ráðstöfun lóða, spildna og jarða.

3.1  Að selja land ríkisins við Blikastaðaveg í Reykjavík.

3.2  Að selja eignarhlut ríkisins í lóð að Frakkastíg 23 í Reykjavík.

3.3  Að selja eða leigja landspildur ríkisins á Reykjanesi.

3.4  Að selja sumarhúsalóðir, íbúðarlóðir og spildur í eigu ríkisins, sem leigðar hafa verið til langs tíma, til leigjenda á grundvelli óháðs verðmats enda liggi ekki sérstakir almanna­hagsmunir að baki eignarhaldi ríkisins.

3.5  Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jarðir sem ekki eru nýttar til ábúðar í því skyni að koma þeim í ábúð eða nýta þær á annan hátt.

3.6  Að heimila Jarðasjóði að ganga til samninga við ábúendur ríkisjarða um breytingar á ábúðarsamningum yfir í nýtt leigufyrirkomulag auk uppgjörs á eignum á viðkomandi leigujörð sé eignarhald í blandaðri eigu ríkisins og ábúandans.

3.7  Að heimila Jarðasjóði að selja áveitulönd að hluta eða öllu leyti aftur til upprunajarða eða á almennum markaði.

3.8  Að heimila Jarðasjóði að kaupa jarðir eða jarðahluta vegna náttúruverndar, menningar­minja, útivistar eða annarrar hagnýtingar sem þjónar almannahagsmunum.

3.9  Að heimila Jarðasjóði í samráði við Land og skóg að selja eða leigja uppgrædd land­græðslulönd að hluta eða öllu leyti aftur til eigenda upprunajarða í samræmi við ákvæði jarðalaga eða á almennum markaði.

3.10 Að selja land við Hvanneyri sem ekki nýtist undir starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands.

3.11 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jarðirnar Hól og Skriðustekk í Fjarðabyggð.

3.12 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Syðri-Bakka í Hörgársveit og jarðirnar Háls og Saurbæ í Eyjafjarðarsveit.

3.13 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Brattholtshjáleigu í Árborg.

3.14 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja landspilduna Skarð í Skeiða- og Gnúpverja­hreppi.

3.15 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Hofstaði í Reykhólahreppi.

3.16 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jarðirnar Bakkakot 2, Syðri-Steinsmýri 1 og Nýjabæ auk íbúðarhúss á jörðinni Ásum í Skaftárhreppi.

3.17 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Kollafoss í Húnaþingi vestra.

3.18 Að selja jarðir og eignir í eigu ríkisins við Halldórsstaði í Laxárdal í Þingeyjarsveit.

3.19 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Írafell í Skagafirði.

3.20 Að ganga til samninga við KFUM varðandi ráðstöfun lóða í Vatnaskógi.

3.21 Að heimila ráðstöfun á landi í eigu ríkisins til landnýtingar í þágu loftslagsmála, s.s. kol­efnisbindingar eða samdráttar í losun með skógrækt, endurheimt eða verndun vistkerfa, að undangenginni greiningu á því, m.a. út frá náttúrufari, hvort tiltekið land henti undir slíka nýtingu.

3.22 Að heimila ráðstöfun á landi Fells í Suðursveit með sérleyfis- eða rekstrar­leyfis­samn­ingum vegna áforma um uppbyggingu á innviðum á Jökulsárlóni.

3.23 Að heimila ráðstöfun á landi Mógilsár í Reykjavík með sérleyfis- eða rekstrarleyfis­samn­ingum vegna áforma um uppbyggingu á þjónustumiðstöð og svifferju í Esjuhlíðum.

3.24 Að heimila ráðstöfun á landi og öðrum innviðum ríkisins á friðlýstum svæðum með sér­leyfis- og rekstrarleyfissamningum vegna reksturs þjónustu og annarrar afþreyingar innan slíkra svæða.

3.25 Að heimila Jarðasjóði að selja jarðirnar Önundarhorn og Gíslakot í Rangárþingi eystra.

3.26 Að ganga til samninga við Minjavernd og Storð um ráðstöfun á landi Ólafsdals í Gilsfirði.

3.27 Að selja landspildur úr jörðinni Straumi í Hafnarfirði og lóðina Sléttuhlíð F9 í Hafnar­firði.

 

Kaup og leiga fast­eigna.

4.1  Að kaupa eða leigja hús­næði fyrir að­al­skrif­stofur ráðu­neyta.

4.2  Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir hjúkrunarrými aldraðra í samræmi við áform um fjölgun slíkra rýma.

4.3  Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir heilbrigðisstofnanir, sjúkrahús eða heilbrigðistengda starfsemi vegna endurskipulagningar eða hagræðingar á starfseminni.

4.4  Að kaupa eða leigja hentugt húsnæði fyrir hverfisstöðvar lögreglunnar á höfuðborgar­svæðinu.

4.5  Að kaupa sumarbústaði í þjóðgarðinum á Þingvöllum og jarðir eða spildur í næsta nágrenni hans.

4.6  Að kaupa eða taka á leigu viðbótarhúsnæði fyrir framhaldsskóla og háskóla í tengslum við sameiningar, breytingar eða hagræðingu á starfseminni.

4.7  Að leigja út húsnæði í eigu ríkisins á almennum markaði sem ekki nýtist undir opinbera starfsemi meðan önnur ráðstöfun er til skoðunar.

4.8  Að kaupa að tillögu Þjóðminjasafns Íslands fasteignir með mikið minjasögulegt gildi til varðveislu í húsasafni stofnunarinnar.

4.9  Að taka á leigu fasteignir fyrir búsetu- og vistunarúrræði eða meðferðarheimili á vegum stjórnvalda.

4.10 Að kaupa eða leigja starfs- og dvalaraðstöðu fyrir starfsmenn í þjóðgörðum og á öðrum náttúru­verndarsvæðum.

4.11 Að kaupa eða leigja skrifstofu- eða atvinnuhúsnæði vegna þarfa einstakra ríkisstofnana verði það talið nauðsynlegt vegna endurskipulagningar á starfsemi þeirra eða til að stuðla að bættri nýtingu og auknu hagræði í rekstri ríkisins.

4.12 Að kaupa eða leigja hentugt húsnæði fyrir Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn.

4.13 Að kaupa eða leigja fasteign fyrir starfsemi lögreglu, tollgæslu og annarra viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu.

4.14 Að heimila Fasteignum Háskóla Íslands ehf. að kaupa eða leigja húsnæði fyrir starfsemi Háskóla Íslands og endurleigja til háskólans.

4.15 Að kaupa eða leigja húsnæði undir heimavist á vegum Fjölbrautaskóla Suðurlands.

4.16 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir varaeintakasafn Landsbókasafns Íslands – Háskóla­bókasafns.

4.17 Að kaupa eða leigja húsnæði vegna þarfa Listasafns Íslands og selja annað húsnæði í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.

4.18 Að kaupa hesthús við Brúnastaði í Hjaltadal vegna hestafræðideildar Háskólans á Hólum.

4.19 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir Háskólann á Akureyri.

4.20 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir úrræði á vegum ríkisins vegna búsetu barna með fjöl­þættan vanda.

 

Kaup og sala hluta­bréfa og aðrar ráðstafanir vegna umsýslu félaga.

5.1 Að selja eignarhlut ríkisins í Sparisjóði Austurlands hf.

5.2 Að nýta samningsbundinn eða lögbundinn rétt til innlausnar eða kaupa á hlutum í fjár­málafyrirtækjum sem að hluta eru í eigu ríkisins.

5.3 Að selja eignarhlut ríkisins í Vísindagarðinum ehf. í Múlaþingi.

5.4 Að selja óverulega eignarhluti ríkisins í félögum.

5.5 Að selja eignarhluti í félögum í eigu háskóla sem þeir hafa eignast á grundvelli 26. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og heimila ráðstöfun á söluandvirði eignarhluta til viðkomandi háskóla.

5.6 Að ganga til samninga við eigendur Landsnets hf. um kaup eða tilfærslu eignarhluta í félaginu til ríkissjóðs.

5.7 Að auka við hlutafé í opinberum félögum í því skyni að auka fjárfestingargetu eða bregð­ast við meiri háttar rekstrarvanda.

5.8 Að auka við hlutafé innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. í því skyni að auka fjárfesting­argetu félagsins til að standa undir fjármögnun mikilvægra samgöngumannvirkja, sbr. lög um innviðafélag nr. 70/2026.

5.9 Að leggja Fasteignum Háskóla Íslands ehf. til fasteignir í eigu ríkissjóðs sem nýttar verða undir háskólastarfsemi, eða tengda starfsemi, með útgáfu skuldabréfs eða lánalínu.

5.10 Að heimila Háskóla Íslands að stofna sérstakt félag utan um eignarhald á rannsóknar- eða sprotafyrirtækjum sem háskólinn hefur aðkomu að.

5.11 Að koma á fót fasteignaþróunarfélagi og færa þar inn þróunareignir í eigu ríkisins sem stendur ekki til að nota undir starfsemi á vegum ríkisins.

5.12 Að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að koma á fót einkahlutafélagi til að annast rekstur happdrættisvéla.

 

Samningar um framkvæmdir, rekstur og afmörkuð verkefni.

6.1 Að ákveða að gengið verði á grundvelli útboðs til samninga um stærri hugbúnaðarkerfi eða skýjaumhverfi fyrir ríkisaðila til allt að 10 ára.

6.2 Að ganga á grundvelli útboðs til samninga um varnarbúnað og þjónustu tengdum honum fyrir starfsemi lögreglunnar til allt að 10 ára.

6.3 Að ganga til samninga um rekstur Vaktstöðvar siglinga til allt að 10 ára.

 

Ýmsar heimildir.

7.1 Að selja, leigja eða ráðstafa með öðrum hætti landi eða lóðum á Ásbrú og í nágrenni Kefla­víkur­flugvallar vegna áframhaldandi þróunar á svæðinu.

7.2 Að ganga til samninga við Minjavernd eða Storð um afhendingu og endurnýjun fasteigna sem ekki eru nýttar af hálfu ríkisins en nauðsynlegt þykir að vernda, einkum vegna menn­ingarsjónarmiða.

7.3 Að þiggja að gjöf Laufáskirkju í Eyjafirði, Keldnakirkju á Rangárvöllum, fasteignir á Litlabæ í Skötufirði og Hraunskirkju í Keldudal til varðveislu í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.

7.4 Að greiða kostnað vegna nauðsynlegra breytinga á húsnæði þegar stofnanir á vegum ríkisins eru í hagræðingarskyni færðar milli fasteigna í eigu ríkisins og/eða fasteigna sem ríkið hefur tekið á langtímaleigu.

7.5 Að færa innra leiguverð fasteigna sem færðar verða í umsjón Framkvæmdasýslu – Ríkis­eigna nær leiguverði sambærilegra eigna á sama markaðssvæði og eftir atvikum að undir­búa breytingar á fjárheimildum vegna þessa. Jafnframt að hækka leiguverð fasteigna í umsjón stofnunarinnar í samræmi við kostnað vegna endurbóta á einstökum eignum.

7.6 Að selja eða leigja ferjuna Herjólf III.

7.7 Að heimila sjúkrahúsum og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að taka þátt í eða eiga samstarf við fyrirtæki sem vinna að vísindarannsóknum og þróun nýjunga á sviði heil­brigðismála og læknisfræði. Samningar sem fela í sér fjárskuldbindingar skulu lagðir fyrir ráðherra heilbrigðismála og fjármála til staðfestingar.

7.8 Að ganga til samninga um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum sem myndast hafa í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins vegna starfsemi sjálfseignarstofnana og félagasamtaka sem kostuð eru af ríkissjóði.

7.9 Að ganga til samninga um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum sem myndast hafa í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og lífeyrissjóðum sveitarfélaga vegna samreksturs ríkis og sveitarfélaga.

7.10 Að nýta svigrúm sem kann að myndast vegna óreglulegra tekna ríkissjóðs, jákvæðrar sjóðstöðu eða annarra eigna ríkisins til þess að greiða inn á skuldbindingar ríkissjóðs vegna B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

7.11 Að taka yfir skuldabréf hjá Ríkisútvarpinu ohf., f.h. ríkissjóðs, sem útgefið var vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

7.12 Að leggja Seðlabanka Íslands til eigið fé, verði eftir því kallað á grundvelli sérstakrar heimildar í 3. mgr. 40. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Eftirstöðvar inn­kallanlegs eigin fjár færast upp við hver áramót með hækkun á vísitölu neysluverðs.

7.13 Að heimila Nýsköpunarsjóðnum Kríu, sem er sprota- og nýsköpunarsjóður í eigu ríkisins, að fjárfesta fyrir allt að 500 m.kr. í samræmi við fjárfestingaráætlun sjóðsins og að greiða allt að 500 m.kr. vegna innköllunar vegna sjóðafjárfestinga. Jafnframt að ákveða að gengisáhætta Kríu vegna fjárfestingarloforða í erlendri mynt verði hjá ríkissjóði.

7.14 Að auka hlut Íslands í Alþjóðaframfarastofnuninni (IDA) fyrir allt að 749 m.kr. í sam­ræmi við ákvörðun stjórnar stofnunarinnar um aukin stofnfjárframlög aðildarríkja Al­þjóðabankans.

7.15 Að auka hlut Íslands í Norræna þróunarsjóðnum (NDF) fyrir allt að 66 m.kr. í samræmi við ákvörðun stjórnar sjóðsins.

7.16 Að veita stofnframlag í Nýsköpunarsjóð Atlantshafsbandalagsins fyrir hönd Íslands fyrir allt að 400 m.kr.

7.17 Að veita bakábyrgð vegna þátttöku Íslands í InvestEU fyrir allt að 2,6 ma.kr.

7.18 Að auka við hlut Íslands í Þróunarbanka Evrópuráðsins í samræmi við ákvörðun stjórnar bankans fyrir allt að 81 m.kr.

7.19 Að auka hlut Íslands í Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) fyrir allt að 600 m.kr. í samræmi við ákvörðun stjórnar sjóðsins.

7.20 Að kaupa blendingsbréf Alþjóðabanka til enduruppbyggingar og framþróunar (IBRD) fyrir hönd Íslands fyrir allt að 150 m.kr.

7.21 Að færa eignir og fjárfestingarheimildir sem hafa verið nýttar milli málaflokka á þann fjárlagalið sem til stendur að hagnýta eða varðveita tiltekna eign. Sé um að ræða flutning eigna milli A1-hluta í A2-hluta fjárlaga er heimilt að fella niður fjárveitingu og umbreyta í lán eða eigið fé til hlutaðeigandi umsýsluaðila.

7.22 Að kaupa og selja fasteignir milli eignasafna ríkisins sem falla undir A-hluta með láni eða eigin fé enda hafi það ekki áhrif á samstæðu A-hluta ríkissjóðs.

7.23 Að heimila ráðstöfun á losunarheimildum, í samráði við ráðherra loftslagsmála, sem til­heyra íslenska ríkinu í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda til móts við loftslagsskuldbindingar íslenska ríkisins.

7.24 Að heimila ráðstöfun á losunarheimildum til flugrekenda, í samráði við ráðherra lofts­lagsmála, sem tilheyra íslenska ríkinu í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir gróður­húsalofttegunda.

7.25 Að heimila sölu og ráðstöfun eininga sem kunna að myndast við uppgjör lofts­lags­skuld­bindinga á grundvelli Evrópuregluverks í samráði við ráðherra loftslagsmála.

7.26 Að heimila Jarðasjóði að ráðstafa brunabótum til viðhalds eða endurbóta á mannvirkjum á ríkisjörðum eða spildum þar sem brunatjón hefur orðið.

7.27 Að fella niður bundið eigin fé hjá ríkisaðilum í A1-hluta í samræmi við markmið laga um opinber fjármál.

7.28 Að ganga til samninga um sölu eða aðra ráðstöfun á lánum eða lánaflokkum sem veittar hafa verið af Húsnæðissjóði.