09 júlí 2020
Fastafulltrúi Íslands kemur að vali á nýjum framkvæmdastjóra Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) í Genf, er einn þriggja fastafulltrúa sem munu miðla málum við val á nýjum framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Staðan varð laus eftir að Roberto Azevedo sitjandi framkvæmdastjóri sagði starfinu óvænt lausu á vordögum með óskum um að láta af störfum 31. ágúst.