Íslendingar í Danmörku

Samfélög Íslendinga í Danmörku

Íslendingafélög

Íslendingafélagið í KaupmannahöfnÍslendingafélagið í SønderborgÍslendingafélagið í ÁlaborgÍslendingafélagið í HorsensÍslendingafélagið í Árósum og nágrenniÍslendingafélagið í Odense

Samfélög á Facebook

Íslendingar í Kaupmannahöfn á FacebookÍslendingar í Danmörku á FacebookÍslendingar í Odense á Facebook

Hús Jóns Sigurðssonar - félagsheimili Íslendinga

Jónshús í Kaupmannahöfn hefur verið í eigu Alþingis frá árinu 1967 er Carl Sæmundsen stórkaupmaður gaf það í minningu Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Þa u hjón bjuggu í húsinu frá árinu 1852 allt til dauðadags, 1879. Húsið er við Øster Voldgade 12.

Árið 1970 hófst rekstur í húsinu. Þar er nú félagsheimili Íslendinga í Kaupmannahöfn, minningarsafn um Jón Sigurðsson og Ingibjörgu og bókasafn í kjallara hússins.

Einnig hafa Íslendingafélagið, íslenski söfnuðurinn, íslenskuskólinn, kórar og margir fleiri aðstöðu í húsinu. Þá er íbúð umsjónarmanns í húsinu, en þar var áður íbúð sendiráðsprests sem gegndi þá jafnframt stöðu umsjónarmanns hússins.

-

Vefur JónshússÍslenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn

Sendiráðsprestur og íslenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn

Sigfús Kristjánsson er prestur Íslendinga í Danmörku. Hann starfar með íslenska söfnuðinum í Kaupmannahöfn og sinnir einnig borgaraþjónustu í sendiráðinu. Hægt er að mæla sér mót við Sigfús í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn í síma: (00 45) 33 18 10 56, íslenskur sími 545 7726 og gegn um netfangið [email protected]. Staðsetning sendiráðs: Strandgade 89, 1401 København K

Guðsþjónustur

Guðsþjónustur eru að jafnaði einu sinni í mánuði í Esajas kirkju. Kvennakórinn Eyja og Kammerkórinn Staka skiptast á að syngja í guðsþjónustum. Staðsetning kirkjunnar: Esajas kirke, Malmøgade 14, 2100 København.

Sunnudagaskólinn

Sunnudagaskólinn er tvisvar í mánuði í Jónshúsi á laugardögum kl. 11.  Umsjón: Bryndís, Sólveig, Kjartan og Sigfús. Sunnudagaskólinn er lífleg samvera með söng, frásögnum og brúðuleikhúsi og eru allir krakkar velkomnir ásamt foreldrum sínum. Staðsetning Jónshúss: Øster Voldgade 12, 1350 København K.

Fermingarfræðslan

Fer fram á fermingarmótum haust og vor, auk fræðslufunda í Jónshúsi.

Nánari upplýsingar um þessa starfsþætti og tímasetningar er að finna á vef kirkjustarfsins: kirkjan.dk

Stofnanir á Íslandi

UtanríkisráðuneytiðStjórnarráð ÍslandsSeðlabankinn (gengisskráning)Sendiráð Danmerkur á ÍslandiÚtlendingastofnun

Stofnanir í Danmörku

Utanríkisráðuneyti DanmerkurBorgaraþjónusta sveitarfélagannaÞjóðþing Danmerkur - FolketingetTollar og skattarSjá einnig www.denmark.dkUpplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar

Námsmenn

Menntasjóður námsmannaS.Í.N.E.