14 mars 2018
Breytingar á fyrirsvari sendiráðsins
Samkvæmt forsetaúrskurði nr. 8/2018 frá 9. febrúar sl. heyra eftirfarandi ríki undir umdæmi sendiráðs Íslands í London: Bretland, Írland, Jórdanía, Katar og Malta. Auk þess gegnir sendiráðið hlutverki fastanefndar gagnvart Alþjóðasiglingamálstofnuninni (IMO). Eftirfarandi ríki heyra því ekki lengur undir umdæmi sendiráðsins: Nígería, Portúgal og Sameinuðu arabísku furstadæmin.