Ferðalög til og frá Bretlandi

ETA­ — Rafræn ferðaleyfi til Bretlands fyrir styttri heimsóknir eða millilendingar

Íslenskum ríkisborgurum (sem ekki hafa vegabréfsáritun eða dvalarleyfi í Bretlandi) er skylt að sækja um rafrænt ferðaleyfi eða „ETA", (Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ferðast til Bretlands. Þetta á bæði við um þá sem ferðast til Bretlands í einkaerindum og styttri vinnuheimsóknum.

Þeir sem millilenda  í Bretlandi gætu þurft ETA en það fer eftir því hvort ferðalangar þurfa að fara í gegnum landamæraeftirlit í millilendingu. Hafðu samband við flugfélagið eða ferðaskrifstofuna til að vera viss og kannaðu málið á www.gov.uk/eta.

Ráðuneytið ráðleggur þó öllum ferðalöngum sem millilenda í Bretlandi að hafa ETA til að koma í veg fyrir vandræði á ferðalögum.

ETA kostar GBP 16 og gildir í tvö ár frá útgáfudegi eða þar til vegabréf viðkomandi rennur út ef það er innan þessara tveggja ára. Leyfið er tengt við vegabréf og þarf því að sækja um nýtt ETA þegar vegabréf eru endurnýjuð . Mælst er til þess að sótt sé um ETA á réttri síðu eða í gegnum rétt smáforrit breskra stjórnvalda „UK ETA“. Mikilvæg vísbending þess efnis er að skoða verðið, en það er aldrei hærra en GBP 16 á mann.

Auðveldast er að sækja um ETA með „UK ETA app“ smáforriti, fyrir iPhone og Android síma,en einnig er hægt að sækja um á vefsíðu breskra stjórnvalda, GOV.UK.

Ertu með vegabréfsáritun eða dvalarleyfi í Bretlandi?

Þeir sem hafa vegabréfsáritun eða dvalarleyfi í Bretlandi þurfa að gæta þess að vegabréfsáritunin sé réttilega tengd við vegabréf og þá er sérstaklega mikilvægt að uppfæra skráninguna þegar vegabréf eru endurnýjuð . Hægt er að athuga og uppfæra skráningu á UKVI aðgangi viðkomandi.

Ertu með tvöfalt ríkisfang?

Þeir sem eru með tvöfalt ríkisfang þurfa nú að gæta þess að ferðast til Bretlands á breska vegabréfinu sínu.

Einfaldast að nota appið til að sækja um

Auðveldast er að sækja um ETA með „UK ETA app“ smáforriti, fyrir iPhone og Android síma,
en einnig er hægt að sækja um á vefsíðu breskra stjórnvalda, GOV.UK.

iPhone appið

:

Android appið:

ETA er ekki dvalarleyfi

Athugið að ef dvelja á lengur en í 6 mánuði í Bretlandi, þarf að sækja um viðeigandi dvalarleyfi, og er ekki nóg að hafa ETA.

Grunur um svikasíður

Þónokkuð er um að fólk sé að lenda inni á svikasíðum og smáforritum. Ef grunur leikur á um slíkt má alltaf sannreyna hvort ETA sé gilt eða ekki í gegnum spjallmenni breskra stjórnvalda á GOV.UK síðunni.

Þá hvetja bresk stjórnvöld fólk til að tilkynna um svikasíður og -forrit í gegnum GOV.UK vefinn.

Nánar á vef breskra stjórnvalda

Frekari upplýsingar um ETA má finna á GOV.UK.