Málefni
Málefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (14.3.2025):
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti fer með mál er varða:
Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
Náttúruvernd og sjálfbæra þróun, þar á meðal:
- Vernd lífríkis og líffræðilegrar fjölbreytni, svo sem vernd vistkerfa, búsvæða, tegunda og erfðaefnis, þ.m.t. í hafi.
- Vernd jarðfræðilegrar fjölbreytni, þ.m.t. jarðmyndana og landslags.
- Vernd náttúruminja eða sérstakra vistkerfa á hafsbotni til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sem ráðuneytið fer með framkvæmd á.
- Vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja.
- Friðlýst svæði og önnur verndarsvæði.
- Svæði sem njóta verndar samkvæmt sérlögum vegna náttúru eða landslags.
- Úrbætur og uppbyggingu á aðstöðu til móttöku ferðamanna í þjóðgörðum, á friðlýstum svæðum og öðrum verndarsvæðum.
- Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
- Náttúruverndarsjóð.
- Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur.
- Náttúruverndarstofnun.
Menningarminjar, þar á meðal:
- Skil menningarverðmæta til annarra landa.
- Verndarsvæði í byggð.
- Minjastofnun Íslands.
Rannsóknir og skráningu upplýsinga um náttúru landsins, hafsins og hafsbotnsins, þar á meðal:
- Umhverfisrannsóknir og umhverfisvöktun.
- Rannsóknir á jarðrænum auðlindum á landi og á hafsbotni öðrum en olíu og ráðgjöf um nýtingu þeirra.
- Íslenskar orkurannsóknir.
Söfnun upplýsinga um umhverfis- og auðlindamál og sjálfbærni á norðurslóðum.
Stjórn vatnamála.
Umhverfisgæði, þar á meðal:
- Hljóðvist.
- Hollustuhætti og mengunarvarnir.
- Varnir gegn mengun hafs og stranda.
- Fráveitur.
- Efnalög.
- Meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.
Erfðabreyttar lífverur.
Umhverfisábyrgð.
Hringrásarhagkerfi, þar á meðal:
- Meðhöndlun úrgangs.
- Úrvinnslugjald, þ.m.t. Úrvinnslusjóð.
- Ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
Loftslagsmál, þar á meðal:
- Losun gróðurhúsalofttegunda.
- Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
- Loftslagsráð.
- Loftslags- og orkusjóð.
Veður og náttúruvá, þar á meðal:
- Veðurþjónustu.
- Vöktun á náttúruvá.
- Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
- Rannsókn á orsökum ofanflóðs og afleiðingum þess ef manntjón hlýst af.
- Veðurstofu Íslands.
Veiðistjórnun og alþjóðaverslun með villt dýr og plöntur, þar á meðal:
- Stjórn veiða villtra fugla og villtra spendýra, annarra en sjávarspendýra.
- Vernd og friðun villtra dýra og villtra fugla.
- Alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu.
Framkvæmd alþjóðasamninga um umhverfismál.
Umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Verndar- og orkunýtingaráætlun.
Orkumál og auðlindanýtingu, þar á meðal:
- Öryggi raforkukerfisins.
- Raforkumarkað.
- Jöfnun kostnaðar við húshitun og dreifingu raforku.
- Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
- Forystu um orkusparnað, nýtingu orku og orkuskipti.
- Visthönnun vöru sem notar orku og orkumerkingar.
- Hitaveitur, þ.m.t. gjaldskrár og stofnstyrki.
- Leyfi til nýtingar á auðlindum í jörðu og á, í eða undir hafsbotni.
- Leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíuleit).
- Vatnalög.
- Raforkueftirlitið.
- Úrskurðarnefnd raforkumála.
Umhverfis- og orkustofnun.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Skóga, skógrækt og landgræðslu, þar á meðal:
- Land og skóg.
Eftirlit með timbri og timburvöru.