Umhverfisstefna

8. maí 2025 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sjálfbærni og vernd umhverfisins að leiðarljósi í starfsemi sinni.

Umhverfisstefnan og framkvæmd hennar er liður í daglegu starfi ráðuneytisins til að draga úr álagi á umhverfið. Ráðuneytið mun leitast við að hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag með ákvarðanatöku sinni.

Ráðuneytið fylgir lögum og reglum um umhverfismál í allri starfsemi sinni. Til að ná sem bestum árangri eru umhverfisþættir ráðuneytisins vaktaðir og markvisst unnið að umbótum.

Ráðuneytið vinnur samkvæmt umhverfisstjórnunarkerfi sem uppfyllir kröfur ISO 14001 og Grænna skrefa í ríkisrekstri.

Leiðarljós

  • Umhverfissjónarmið eru höfð að leiðarljósi við alla stefnumótun ráðuneytisins

  • Innkaup ráðuneytisins eru í samræmi við stefnu ríkisins um sjálfbær innkaup og rammasamninga Fjársýslunnar

  • Starfsfólk ráðuneytisins fær reglulega fræðslu um umhverfismál og innra umhverfisstarf ráðuneytisins

  • Minnka kolefnisspor ráðuneytisins m.þ.a. draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með vistvænni samgöngum og auka bindingu

  • Úrgangur er flokkaður og skilað til endurnýtingar eða endurvinnslu. Unnið er markvisst að því að draga úr úrgangi

  • Spilliefnum og hættulegum efnum er fargað á viðeigandi hátt

  • Auðlinda- og efnanotkun er haldið í lágmarki