Um ráðuneytið

Meginviðfangsefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins eru á sviði loftslags- og orkumála, hringrásarhagkerfis og umhverfisgæða, náttúruverndar- og menningarminja og rannsókna, varna og vöktunar náttúruvár.

Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Skrifstofur umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins eru sex samkvæmt skipuriti þess; skrifstofa ráðuneytisstjóra, skrifstofa náttúru og minjaverndar, skrifstofa umhverfisgæða, skrifstofa orkumála, skrifstofa loftslagsmála og skrifstofa alþjóðamála. Þverfagleg teymi starfa innan tiltekins málaflokks eða þverlægs viðfangsefna ráðuneytisins og verkefnahópar eru myndaðir innan ráðuneytis vegna tímabundinna verkefna. Sjá nánar skipurit ráðuneytisins.

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands  (15.03.2025).