Skipulag

Æðsti yfirmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Æðsti embættismaður ráðuneytisins er ráðuneytisstjóri, sem stýrir daglegum rekstri þess.

Fjallað er um verkefnasvið umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta (15.3.2025)

Í ráðuneytinu vinnur öflugur hópur fólks sem skiptist á sex skrifstofur

Skrifstofur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins

Skrifstofa ráðuneytisstjórahefur umsjón með stýringu og samhæfingu innan ráðuneytisins, mannauðs- og samskiptamálum, fjármálum og stafrænni þróun

Innan skrifstofu ráðuneytisstjóra er sérstök eining fjármála, innri þjónustu og stafrænnar þróunar sem veitir fagskrifstofum ráðuneytisins stuðning. Rekstrarstjóri fer með stjórnun hennar.

Skrifstofa náttúru og minjaverndar fer með málefni náttúru og minjaverndar, þ.m.t. verkefni tengd náttúruvernd á landi og í hafi, minjavernd, uppbyggingu og rekstri innviða á friðlýstum svæðum, landgræðslu og skógrækt, veiðistjórnun, líffræðilegri fjölbreytni, vernd í hafi og verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun).

Skrifstofa umhverfisgæða fer með málefni á sviði umhverfisgæða og hringrásarhagkerfisins. Hún sinnir einnig verkefnum sem snúa að stjórn vatnamála, hollustuháttum og mengunarvörnum, hljóðvist, loftgæðum, vörnum gegn mengun hafs og stranda, fráveitum, efnamálum, erfðabreyttum lífverum, meðferð elds og varnir gegn gróðureldum, umhverfisábyrgð og umhverfismati framkvæmda og áætlana.

Skrifstofa orkumála fer með orkumál, þ.m.t. verkefni tengd raforkuframboði og -öryggi, raforkumarkaði, viðskiptavettvangi með raforku, raforkueftirliti, málefnum flutnings- og dreifikerfa og jarðhita.

Skrifstofa loftslagsmála fer með loftslagsmál, þ.m.t. verkefni tengd loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna, eftirfylgni skuldbindinga samkvæmt Parísarsamningnum, gerð og eftirfylgni aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum, auk áætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum.

Skrifstofa****alþjóðamála sinnir alþjóðamálum og hefur yfirsýn yfir alþjóðastarf, alþjóðasamninga og norrænt samstarf ráðuneytisins. Skrifstofan starfar þvert á ráðuneytið, gætir íslenskra hagsmuna og annast umsjón EES mála.

Teymi og verkefnahópar

Teymi starfa innan tiltekins málaflokks eða þverlægs viðfangsefna ráðuneytisins og verkefnahópar eru myndaðir innan ráðuneytis vegna tímabundinna verkefna sem eru ýmist þverfagleg eða áherslu-, þróunar- eða umbótaverkefni.

Því til viðbótar eru þjónustu- og árangursráð, sem eru samráðsvettvangar ráðuneytisins og stofnana þess vegna innleiðingar stefnu- og árangursmiðaðrar stjórnunar og eftirfylgni með stærri stefnumálum og áskorunum á verkefnasviði viðkomandi stofnunar.

Sjá einnig upplýsingar um starfsfólk umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins.