Verðlagsnefnd búvara

Verðlagsnefnd búvara er skipuð og starfar ákvæðum búvörulaga. Nefndin er skipuð sex mönnum og ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu.

Samtök launþega tilnefna tvo fulltrúa í nefndina. Skal annar þeirra tilnefndur af stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og hinn af stjórn Alþýðusambands Íslands. Noti annar aðilinn ekki tilnefningarrétt sinn færist réttur hans til hins.

Stjórn Bændasamtaka Íslands og stjórnir búgreinasamtaka, sem hlotið hafa viðurkenningu skv. 4. gr. búvörulaga og starfa fyrir búgreinafélög þeirra afurða sem verðlagðar eru hverju sinni, tilnefna tvo fulltrúa í nefndina sameiginlega. Skal annar þeirra tilnefndur til að fjalla eingöngu um verðmyndun til framleiðenda. Skal hann víkja úr nefndinni fyrir fulltrúa samtaka afurðastöðva í nefndinni þegar fjallað er um verðmyndun hjá afurðastöðvum.

Samtök afurðastöðva fyrir búvörur tilnefna tvo fulltrúa í nefndina. Skulu þeir tilnefndir þannig að í nefndinni starfi hverju sinni fulltrúar frá þeirri vinnslugrein sem um er rætt hverju sinni. Annar þessara fulltrúa skal tilnefndur til að starfa aðeins í nefndinni þegar nefndin fjallar um verðmyndun hjá afurðastöðvum og kemur í stað fulltrúa framleiðenda sem víkur sæti.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tilnefnir einn fulltrúa í nefndina og er hann formaður hennar. Einnig tilnefnir ráðherra fulltrúa minni vinnslufyrirtækja mjólkur sem áheyrnarfulltrúa í nefndina og hefur hann tillögurétt.

Varamenn eru tilnefndir á sama hátt og aðalmenn. Tilnefningu fulltrúa í verðlagsnefnd skal lokið 15. júní ár hvert. Nú notar einhver aðili ekki rétt sinn til tilnefningar og skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þá tilnefna mann í nefndina í stað samtaka framleiðenda og samtaka afurðastöðva en félagsmálaráðherra á sama hátt í stað samtaka launþega. Nefndin skal fullskipuð 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands er verðlagsnefnd til aðstoðar.

Verðlagsgrundvöllur kúabús

Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2026Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2026Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2025Verðlagsgrundvöllur 1. september 2025Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2025Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2025Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2024Verðlagsgrundvöllur 1. september 2024 Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2024Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2024Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2023Verðlagsgrundvöllur 1. september 2023Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2023Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2023Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2022Verðlagsgrundvöllur 1. september 2022Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2022Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2022Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2021Verðlagsgrundvöllur 1. september 2021Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2021Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2021Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2020Verðlagsgrundvöllur 1. september 2020Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2020Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2020Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2019Verðlagsgrundvöllur 1. september 2019Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2019Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2019Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2018Verðlagsgrundvöllur 1. september 2018Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2018 Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2018Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2017Verðlagsgrundvöllur 1. september 2017Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2017Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2017Verðlagsgrundvöllur 1. desember 2016Verðlagsgrundvöllur 1. september 2016Verðlagsgrundvöllur 1. júní 2016Verðlagsgrundvöllur 1. mars 2016

Gjaldaliðir hjá mjólkursamlögum

Reiknuð hækkun mars 2026 - júní 2026Reiknuð hækkun desember 2025 - mars 2026Reiknuð hækkun mars 2026 - júní 2026Reiknuð hækkun júní 2025 - desember 2025Reiknuð hækkun mars 2025 - júní 2025Reiknuð hækkun desember 2024 – mars 2025Reiknuð hækkun september 2024 – desember 2024Reiknuð hækkun september 2023 - desember 2023Reiknuð hækkun mars 2023 - september 2023Reiknuð hækkun mars 2023 - júní 2023Reiknuð hækkun desember 2022 - mars 2023Reiknuð hækkun september 2022 - desember 2022Reiknuð hækkun mars 2022 - september 2022Reiknuð hækkun október 2021 - mars 2022Reiknuð hækkun mars 2021 - október 2021Reiknuð hækkun maí 2020 - mars 2021Reiknuð hækkun desember 2019 – maí 2020Reiknuð hækkun ágúst 2019 - desember 2019Reiknuð hækkun desember 2016 - júní 2018Reiknuð hækkun júní - desember 2016Reiknuð hækkun júní - nóvember 2016Reiknuð hækkun júlí 2015 - júní 2016
Sjá einnig: