Inn- og útflutningur dýra og plantna
Í lögum nr. 54/1990 er kveðið á um innflutning dýra til landsins. Meginregla laganna er að óheimilt sé að flytja til landsins hvers konar dýr, tamin eða vill svo og erfðaefni þeirra. Undantekningar eru þó í lögum um innflutning dýra að uppfylltum tilteknum skilyrðum en þau dýr sem falla undir undantekninguna eru:
- Gæludýr og erfðaefni þeirra
- Loðdýr
- Frjógvuð alifuglaegg
- Fiskar og erfaefni þeirra
- Erfðaefni svína
- Erfðaefni holdanautgripa
Í lögum um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum er fjallað um innflutning, útflutning og dreifingu á öllum tegundum plantna, mold, húsdýraáburði, umbúðum og fleira. Nánar er fjallað um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum í reglugerð.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um innflutning dýra nr. 54/1990Lög um náttúruvernd nr. 60/2013Lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum nr. 51/1981Reglugerð um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna nr. 525/2007Lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993Lög um útflutning hrossa nr. 27/2011Tengt efni
BúfjárræktBúvörusamningarDýralæknar og heilbrigðisstarfsmenn dýraInn- og útflutningur landbúnaðarvaraJarða- og ábúðarmálVelferð dýraÍtarefni
Erfðanefnd landbúnaðarinsInn- og útflutningur dýra og plantna