Dýra- og plöntusjúkdómar
Dýrasjúkdómar
Tilgangur laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim er að:
- stuðla að góðu heilsufari dýra í landinu og koma í veg fyrir að nýir smitsjúkdómar berist til landsins,
- fylgjast með og hindra útbreiðslu dýrasjúkdóma og vinna að útrýmingu þeirra,
- tryggja að búfjárafurðir, framleiddar í landinu, verði sem heilnæmastar.
Innflutningur getur falið í sér áhættu á því að sjúkdómar kunni að berist til landsins. Þar sem landið er eyja og einangrað frá öðrum löndum eru dýr og sérstaklega búfé hér á landi viðkvæmt fyrir þeim sjúkdómum sem gætu borist til landsins. Lögunum er því ætlað að koma í veg fyrir útbreiðslu dýrasjúkdóma og útrýma þeim komi þeir upp hér á landi. Á grundvelli laga um dýrasjúkdóma hafa verið settar reglugerðir m.a. um varnarhólf í sauðfjárrækt vegna t.d. riðu, hvaða sjúkdómar eru tilkynningar- og skráningarskyldir og um varnir gegn því að dýrasjúkdómar berist til landsins.
Plöntusjúkdómar
Tilgangur laga um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í plöntum nr. 51/1981 er að:
- tryggja sem best góða og heilbrigða ræktun plantna hér á landi,
- koma í veg fyrir að hættulegir skaðvaldar berist til landsins og dreifist innanlands, og útrýma skaðvöldum, sem þegar hafa borist til landsins, teljist það framkvæmanlegt og
- hindra að skaðvaldar, sem aðrar þjóðir vilja verjast, berist frá Íslandi.
Í reglugerð um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum nr. 189/1990 er kveðið á um það með hvaða hætti koma skuli í veg fyrir að skaðvaldar sem valdið geti alvarlegu tjóni á plöntum og plötuafurðum hér á landi, berist til landsins og einnig hvernig hindra megi að skaðvaldar sem aðrar þjóðir vilja verjist berist ekki til þeirra frá Íslandi.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um innflutning dýra nr. 54/1990Búnaðarlög nr. 70/1998Lög um náttúruvernd nr. 60/2013Lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum nr. 51/1981Reglugerð um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum nr. 189/1990Reglugerð um viðarumbúðir vara við útflutning nr. 343/2004Reglugerð um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna nr. 525/2007Lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993Reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir beris til landsins nr. 448/2012Reglugerð um tilkynningar- og skráningarskylda dýrasjúkdóma nr. 52/2014Reglugerð um sóttvarnarstöðvar fyrir alifugla nr. 136/2015
Inn- og útflutningur dýra og plantna