Rekstrarleyfi einangrunarstöðva
Samkvæmt 9. gr. laga um innflutning dýra setur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra reglugerð um rekstur sóttvarna- og einangrunarstöðva og öryggi gagnvart hugsanlegri sýkingarhættu frá þeim. Einangrunarstöð er sóttvarnaraðstaða fyrir loðdýr, gæludýr, fugla og fiska auk svína og nautgripa og erfðaefnis þeirra. Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um ströng ákvæði um mannaferðir, meðferð áburðar og hvers konar úrgangs og afurða frá stöðvunum.
Veitt eru rekstrarleyfi einangrunarstöða fyrir:
- Gæludýr
- Loðdýr
- Fugla
- Fiska
- Svína og erfðaefnis þeirra
- Holdanautgripa og erfðaefnis þeirra
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um innflutning dýra nr. 54/1990Inn- og útflutningur dýra og plantna