Framleiðsla
Um framleiðslu matvæla gilda ákvæði laga um matvæli nr. 93/1995. Framleiðsla felur í sér meðferð hráefnis, vinnslu, pökkun og matreiðslu. Undir hugtakið fellur einnig húsnæði, störf, hreinlæti og heilbrigði starfsfólks og hvað annað sem tengist framleiðslu matvæla, svo og efni og hlutir sem geta komist í snertingu við matvæli.
Hráefni til matvælaframleiðslu eru öll efni, önnur en bætiefni, aukaefni, bragðefni og varnarefni. Efni og hlutir eru allar umbúðir, ílát, áhöld, tækjabúnaður, borðbúnaður og öll efni sem slíkir hlutir eru samsettir úr og geta komist í snertingu við matvæli.
Framleiðsla matvæla skiptist í tvennt:
- Frumframleiðsla en það er framleiðsla, eldi eða ræktun undirstöðuafurða ásamt uppskeru, mjöltum og eldi dýra fram að slátrun. Þá fellur undir frumframleiðslu dýra- og fiskveiðar ásamt nýtingu villigróðurs.
- Smásala er meðhöndlun og/eða vinnsla matvæla og geymsla þeirra á staðnum þar sem þau eru seld eða afhent neytanda, þ.m.t. dreifingarstöðvar, matsölufyrirtæki, mötuneyti starfsfólks, veitingahús og önnur samsvarandi matarþjónusta ásamt verslunum og dreifingarstöðvum stórmarkaða og heildsölumarkaðir.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um matvæli nr. 93/1995Matvæli og matvælaöryggi